Vinkona mín baktalar mig
Mér finnst svolítið leiðinlegt að ein vinkona mín, eða eiginlega er allveg rosalega skemmtileg og góð við mig en um leið og ég er farin frá henni fer hún að baktala mig.
Og svo er hún búin að segja eitthvað rosalega ljótt og ég segi að ég muni aldrei aftur fyrirgefa henni en svo gerist það bara sjálfkrafa án þess að ég vilji það en hún er svo skemmtileg en hún segir líka svo ljóta hluti á msn og netinu geturu sagt mér hvað ég á að gera
Heimakennsla
Er hægt að fá heimakennslu án þess að maður er fatlaður eða með aðra sjúkdóma? Það er að segja af foreldrum eða einkakennara? (Af foreldrum ef þau hafa kennsluréttindi.)
Ábyrgð foreldra
Hver er ábyrgð foreldra?
iPod og GSM símar teknir af nemendum
Telst það ekki sem stuldur ef kennari tekur síma/iPod úr vasa eða höndum nemanda og nemandi neitar í skólum? Einn stærðfræði kennarinn í skólanum mínum sagði að ef einhver myndi taka eitthvað af skrifborðinu sínu eða hillunni myndi sá fara til skólastjóra fyrir stuld...
Nokkrum dögum áður hafði hann tekið iPod sem verið var að nota af einum nemanda... Það má vísa manni úr tíma en ekki taka hluti af manni ófrjálsri hendi, er það nokkuð? Kennarinn sagði að það standi í skólareglum að símar og önnur tól mega vera gerð upptæk... En skólareglur eru ekki landslögum æðri er það nokkuð?
Forsjárhyggja og foreldravald
Mér finnst að lögin eiga ekki að ráða hvenær maður fer heim til sín, það ætti bara að vera foreldrar sem ráða því og ef maður vill ekki vera hjálm þá ætti maður bara að ráða því sjálf(ur)... Kannski bara að segja manni frá áhættunni um að vera ekki með hjálm í skólum og leyfa manni að ráða sjálfur. Ég ætti að ráða hvort ég setji hjálm á hausinn á mér þótt hjálmurinn getur varið mig frá varanlegum skaða eða dauða... Það þarf alltaf að setja lög um það sem tengist unglingum og börnum. Örugglega af því fólkið sem gerir lögin heldur að maður geti ekki passað sig sjálfur... Og afhverju eru barnaverndarlög? Afhverju eru ekki sömu lög fyrir alla?
Varaskeifa
Það er alveg svakalega skrýtið, en mér finnst eins og vinir mínir noti mig sem auka hlið á öllu lífinu! Þeir eru með mér þegar að allir hinir eru í burtu! eru þeir alvölu vinir mínir eða gervi vinir?
Trúnaður umsjónarkennara
Hææ.. Heyrðu ég var að pæla það stendur nefnielga svo oft og er sagt að ef það er eitthvað að hjá manni og að fara tala við sem dæmi umsjónarkennarann sinn. En ég var að spá vinur minn fór og talaði við kennarann sinn og bað hann um að seigja ekkert frá því samtali en hann hringir svo í umboðsmann barna.. Hvernig getur maður þá treyst kennurunum eða einhverjum eftir þetta??
Ný stelpa komin í bekkinn
Hæ. Það var að byrja ný stelpa í bekknum mínum og hún er ÓÞOLANDI. Hún lýgur í öðru hverju orði, reykir í frímínútunum (sem kennararnir gera EKKERT útaf, hún hefur EINU sinni verið skömmuð en kennarinn okkar talaði alvarlega um þetta við okkur og hálf skammaði okkur) og svo vill enginn stitja hliðina á henni útaf maður er að kafna úr reykingalykt (og já, hún er ekkert að reyna að fela lyktina). Starfsfólkið elskar hana útaf hún sleikir allla upp (hún sagði mér það einu sinni t.d. að hún væri að sleikja upp enskukenarann til að fá betri einkunnir). Svo hrækti hún einu sinni í andlitið á vini mínum, sem kvartaði í kennarann sem talaði aðeins við hana og ekkert meir. Hún er að MONTA sig yfir því að hún sé fyrrverandi hasshaus og er alltaf að drulla yfir okkur (bekkinn) segja hvað við séum barnaleg og þannig. Hún er beinlínis það sem á íslensku kallast [...]. Ein stelpa sem við skulum kalla X sat hliðina á henni og þær voru eitthvað að tala um kennarasleikjur. Hún sagði "já það er náttlega bara ógeðslegt þegar nemendur sofa hjá kennurum til að hækka einkunnirnar" og þá sagði X "jájá segir ein" og þá brjálaðist hún og fór að grenja og fór heim. Ég var að tala á msn við fyrrverandi bekkjarsystur hennar sem sagði að hún hefði alltaf verið svona.
Kynferðisleg misnotkun í æsku
Ath. Þetta erindi hefur verið stytt af umboðsmanni barna.
Veit ekki hvernig ég á að orða þetta, en ég geri mitt besta, þegar ég var yngri var mér ekki beint nauðgað, veit ekkert hvernig a að kalla þetta, en þaðvar frændi minn sem bauð mér með sér heim að gefa kettinum, og hann fór með mig inní rúm, lagðist ofan á mig og ... lét mig horfa a klámspólu, og lét mig velja hvaða stellingu ég vildi (ég var ekki nema 4-5) og einnig klamblöð, þetta gekk í alllangan tima, þar til bræður minir fóru að gera svipað ... Ég sagði mömmu og pabba, þetta fór til barnaverndarnefnd, og allt, en svo áttaði eg mig a þvi að ég væri að rústa fjölskyldunni, og ég vildi ekki hafa það a samviskunni að hafa gert það! Þannig eg laug að þeim og saðgi að ég hefði logið þessu öllu saman. Ég lokaði mikð á þetta, og næstum gleymdi því, ekki fyrr en nuna þegar ég var 13 þetta fór að rifjast mikið upp þessir tímar (það sem ég man, náði svo mikið að loka a þetta). En eg fór að taka eftir þvi, eg leita soldið eftir ást hjá strákum, strákum sem vilja meira með mig að hafa, en þetta sem mér var gert í barnæsku! Liggja í faðmlagi, og láta elska mig, er þetta eðlilegt? Og hvað á ég að gera? Á ég að fara til allra og segja að eg hafi verið að ljúgja? Getur ástæðan að eg byrjaði að reykja útaf eg fór að rifja þetta upp??
Ný stelpa í skólann
Hvað á maður að gera ef maður á bestu vinkonu en svo kemur ný stelpa í skólann og reynir að taka hana frá manni en samt erum við ennþá bestu vinkonur en hún er samt eldri en ég. Getur þú nokkuð hjálpað eða gefið mér ráð?
Mátti ekki ljúka heimavinnu í frímínútum
Á ekki barn í skóla rétt á því að klára heimavinnu sína í 5 mínútna frímínútum áður en tíminn byrjar og sleppa við að fá punkt fyrir að vinna ekki heimavinnu.
Kennarinn minn gaf mér óunna heima vinnu fyrir að hafa ekki klárað heimavinnu mína áður en ég kom í skólann og ég er allveg brjáluð yfir þessu. Mér finnst þetta vera mannréttindabrot. Og ég ætla að kvarta við yfirvöld yfir því að ég fái ekki rétt minn í skólanum uppfylltan og ég er ekkert lítið barn ég er í 10 bekk og það gera allir mistök að gleyma því sem þeir eiga að gera og það á ekki að þurfa að refsa 15 ára krökkum né neinum öðrum fyrir það. Hvernig getur hún gefið manni óunna heimavinnu áður en tíminn byrjar?? Og hún gaf mér ekki einu sinni tækifæri til þess vegna þess að þegar hún sá mig vinna þær þrjár spurningar sem átti eftir af 20 spurningum þá stoppaði hún mig og var svo reið og talaði svo mikið þannig að ég gat ekki klárað en ef hún hefði gefið mér tækifæri til þess þá hefði ég getað klárað þetta allt!!
Ég er 15 ára stelpa og vill að það sé komið við mig á réttan hátt og að ég fái alla vegana að njóta réttar míns og það sérstaklega í skólanum.
Hvað get ég sagt við ömmu?
Hæhæ amma mín er mjög góð. En ég er nýhætt að æfa íþrótt ég vil helst bara að gleyma henni. Hvað get ég sagt við hana ömmu mína svo að hún skilja það að ég vilji láta hætta tala um það??
Erfitt skap
Ég á í erfileikum með að stjórna skapinu. Getur þú hjálpað mér?
Umgengni
Foreldrar mínir eru skilin og ég spyr hvenær má ég hætta að ferðast á milli Akureyrar og Húsavíkur?
Hrifin af homma
Hæ vandamál! Ég er með strák í tíma og við urðum ágætir vinir, og ég varð geðveikt hrifin af honum. Svo varð ég bara ástfangin af honum og gaf það alltaf í skyn o.s.frv. þangað til ég spurði hann hvort ég ætti séns í hann, og hann sagði já en hann væri hommi.
Veit ekki hvort ég má segja öðrum að bróðir minn er samkynhneigður
Halló. Stóri bróðir minn er samkynhneigður, sem er ekkert mál mig fyrir mig og ég elska hann og allt það. Málið er bara það að mamma og pabbi eru þannig að þau segja aldrei neitt. Þau elska hann alveg og virða og eru í '78 samtökunum en málið er að engin annar í fjölsk. veit það held ég. Alla vegna vita amma og afi það ekki. Amma min spurði um daginn mig hvort hann ætti kærustu og ég sagði bara nei. Hvað á ég eigilega að segja ? Svo er fullt af fólki að spyrja mig hvort hann sé hommi og ég veit ekkert hverju ég á að svara. Ég meina, ég skammast mín ekkert en samt veit ég ekki hverju ég á að svara.
Svo tala sumir í bekknum minum um "ógeðslega homma" og þannig og ég fer í hnút, langar mest að fara að grenja eða brjálast. Kennararnir hafa tekið eftir því og skamma þá og þannig. En bara...t..d sagði vinkona min sem veit ekki að hann er hommi, að henni fyndist hommar ógeðslegir. Og ég varð auðvitað sár og reið og spurði af hverju, og hún hálf svaraði ekki. ég svaraði með einhverju og hún hefur ekki sagt neitt síðar. Svo t.d. talar einn strákur illa um homma en hann veit ekki að stóri bróðir hans er hommi og það má víst ekki segja honum það vegna þess að hann lítur upp til hans. Hvað á ég eigilega að gera? Ég skammast min ekkert, en bara....