Mega strákar snerta stelpur án leyfis
Stúlka
12
"Meiga strákar snerta stúlkur án leifis og seija að það varnóvart en gera það aftur ?"
Leiðrétt spurning: Mega strákar snerta stúlkur án leyfis og segja að það var óvart en gera það aftur?
Hæ,
Þú átt rétt á friðhelgi einkalífs og rétt til að ráða yfir eigin líkama. Enginn hefur rétt á að meiða þig eða snerta þig á óviðeigandi hátt þannig að þér líður illa og án þín leyfis. Best væri að byrja á því að biðja þá um að hætta og láta þá vita að þér þykir þetta óþægilegt.
Ef þeir halda þessari hegðun áfram þá væri gott að leita til einhverra fullorðinna sem þú treystir, t.d. námsráðgjafa, kennara eða foreldra.
Með góðri kveðju, frá umboðsmanni barna