Umgengni
strákur
14
Foreldrar mínir eru skilin og ég spyr hvenær má ég hætta að ferðast á milli Akureyrar og Húsavíkur?
Komdu sæll
Einfaldasta svarið við spurningunni er svona: Þegar þú ert orðinn 18 ára máttu hætta að ferðast á milli Húsavíkur og Akureyrar því þá ræður þú þessu alveg sjálfur. Þangað til eru það foreldrar þínir sem ráða umgengninni en þeir eiga samt að hlusta á óskir þínar og virða þær í samræmi við það sem er þér fyrir bestu.
Það er réttur þinn að umgangast reglulega báða foreldra þína eftir skilnað þeirra. Það er líka bæði réttur og skylda þess foreldris sem þú býrð ekki hjá að rækta samband sitt við þig.
Ef þú ert ekki sáttur við það hvernig umgengninni er háttað skaltu endilega segja foreldrum þínum frá því. Ef þér líður ekki nógu vel á öðrum hvorum staðnum eða finnst vont að vera svona mikið á ferðinni er mikilvægt að foreldrar þíni viti af því. Þau eiga að hlusta á þig og taka réttmætt tillit til skoðana þinna. Í barnalögum segir í 6. málsgrein 28. greinar:
Foreldrum ber að hafa samráð við barn sitt áður en málefnum þess er ráðið til lykta eftir því sem aldur og þroski barnsins gefur tilefni til. Skal afstaða barns fá aukið vægi eftir því sem barnið eldist og þroskast.
Kannski væri hægt að breyta umgengninni þannig að hún henti þér betur, t.d. þannig að þú farir sjaldnar og verðir kannski aðeins lengur í einu. Foreldrarnir hafa samt alltaf lokaorðið en þau eiga þó alltaf að haga þínum málum eins og er þér fyrir bestu. Ef þau eru ekki sammála hvernig er best að hafa umgengnina þá aðstoðar sýslumaðurinn þau að ná sáttum. Ef það gengur ekki getur sýslumaður ákveðið hvernig umgengnin á að vera.
Ef þér líður illa út af þessu og vilt ræða málin við einhvern hlutlausan vill umboðsmaður benda þér á námsráðgjafann í skólanum.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna
* Uppfært: Umboðsmaður barna vill vekja athygli á því að nú geta börn geta beðið sýslumann um að boða foreldra þess til fundar til að ræða óskir barnsins um breytingar á fyrirkomulagi forsjár, lögheimilis, búsetu eða umgengni.
Áður en foreldrar eru boðaðir til samtals á að gefa barninu kost á viðtali með fagaðila sem aðstoðar það við að koma eigin sjónarmiðum á framfæri við foreldra.
Barn getur haft samband við sýslumann með því að hringja eða senda tölvupóst eða koma við á skrifstofu sýslumanns og biðja um samtal.
Hér má finna nánari upplýsingar um þetta:: https://island.is/rettur-barns-til-thess-ad-leita-til-syslumanns