Spurt um hæð og þyngd
Vil ekki segja
Er í lagi að vera 168 cm og 76 kg?
Takk fyrir erindið þitt. Það er gott hjá þér að leita til umboðsmanns barna með þetta því margir deila áhyggjum þínum af sinni eigin líkamsþyngd. Þyngd er í raun mjög einstaklingsbundin og fer það m.a. eftir hæð hvers og eins hver kjörþyngdin á að vera.
Við erum öll mismunandi byggð og það er alls ekki hægt að meta manneskju hvorki út frá hæð hennar eða þyngd. Þú ættir alls ekki að hafa áhyggjur af líkamsþyngd þinni eða líkamsbyggingu því það mikilvægasta er að lifa góðu og heilbrigðu lífi, t.d. með því að hreyfa sig reglulega.
Á vefsíðunni heilsuvera.is getur þú lesið meira um líkamsmynd og sjálfsmynd unglinga. Á síðunni er líka hægt að finna ýmsar aðrar upplýsingar um heilsu og heilbrigði. Ef þú hefur áhyggjur sjálf getur þú sent inn spurningu til hjúkrunarfræðingsins í vefspjalli eða leitað til námsráðgjafans í skólanum þínum eða skólahjúkrunarfræðingsins.