Ólétta og fóstureyðing
Hvað á ég að gera ef ég er ólétt og vil ekki segja foreldrum mínum frá. Er ekki eitthvað svona fóstureyðingardæmi?
Uppfært í apríl 2024...
Breyting var lögum um þungunarrof árið 2019 og því á þetta svar um fóstureyðingu (þungunarrof) ekki við lengur.
Hæ.
Það er gott há þér að spyrja og það er líka alltaf hægt að leita til skólahjúkrunarfræðings hvað varðar kynheilbrigði. Það er einnig hægt að fá ráðgjöf um ýmislegt tengt heilsu og heilbrigði í gegnum netspjall heilsuveru .
Hér er hins vegar svar við svipaðri spurningu sem svarar einnig þessari:
Hér getur þú fengið nánari upplýsingar um fóstureyðingu.
Hér ber þó að hafa í huga að þegar um er að ræða stúlkur undir 16 ára aldri verður að hafa foreldra með í ráðum í umsókn um fóstureyðingu nema aðstæður mæli sérstaklega gegn því. Það kemur fram í lögum um fóstureyðingar en dæmi um sérstakar ástæður er þegar ástæða er til að halda að það geti verið mjög skaðlegt fyrir stelpuna að foreldrar hennar fái að vita að hún sé ólétt.
Það væri gagnlegt að hafa samband við félagsráðgjafa kvennadeilar Landspítalans og bóka viðtalstíma í síma 543-3600 en í slíku viðtali er hægt að fá upplýsingar og fræðslu um ferlið og önnur góð ráð.
Vonandi svarar þetta þér einhverju en endilega hafðu samband við okkur í síma 800-5999 (gjaldfrjálst) ef þú vilt fá frekari upplýsingar eða ert með fleiri spurningar. Þú getur líka sent okkur tölvupóst á ub@barn.is ef þú ert með fleiri spurningar eða í gegnum heimasíðuna okkar nafnlaust.