Snapchat
Hæhæ. Ég vil fara fá vini inn á snapchat en mamma mín leyfir mér það ekki. Ég veit allar reglurnar um neteinelti og hvað maður má og hvað maður má ekki. Allir vinir mínir eru með vini inn á snapchat. Og ég mundi bara vera með vini sem ég þekki
Hæ.
Það er rétt hjá mömmu þinni að leyfa þér ekki að fara strax á snapchat því aldurstakmarkið er 13 ára og yngri börn mega ekki vera þar. Frábært að þú vitir allt um neteinelti og þekkir reglurnar því það styttist í að þú megir vera á snapchat.
Gangi þér vel.
Bestu kveðjur frá umboðsmanni barna