Má fara úr tíma
stelpa
14
Má fara úr tíma þegar hann er búin og engin kennari eða engin mætir eða segir okkur að gera eih?
Hæ hæ
Það er misjafnt eftir skólum hvaða reglur gilda um mætingu. Það er því best fyrir þig að kynna þér þær reglur sem gilda í þínum skóla.
Almennt má ætla að nemendur geti gert ráð fyrir því að kennslustund falli niður þegar 15 mínútur eru liðnar og kennarinn ekki mættur. Við slíkar aðstæður væri þó yfirleitt best að fara á skrifstofu skólans og láta vita.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna