Má ég strjúka að heiman?
Vil ekki segja
12
má ég strjúka að heiman? mér leiðist svo heima
Hæ hæ.
Það er leitt að heyra að þér leiðist heima hjá þér en foreldrar fara með forsjá barna sinna til 18 ára aldurs. Það þýðir að foreldrar ráða því yfirleitt hvar börnin þeirra eiga heima. Börn eiga alltaf rétt á að segja sína skoðun á málum sem varða þau og fullorðnir eiga að hlusta á skoðanir barna sinna og taka mark á þeim. Þar sem þú ert 12 ára ættu skoðanir þínar að skipta miklu máli.
Ef þér leiðist eða líður illa heima hjá þér er fyrsta skrefið að ræða við foreldra þína og segja þeim hvernig þér líður og hvað þú villt. Það gæti líka verið gott að fá einhvern annan fullorðinn sem þú treystir til þess að hjálpa þér við að tala við foreldra þína eins og t.d. ömmu, afa, frænku eða frænda.
Ef það er ekki nógu vel hugsað um þig eða einhver er vondur við þig á heimilinu þá getur þú líka haft samband við barnavernd. Hægt er að að hringja beint í 112 og biðja um samband við barnavernd.
Ef þú villt fá frekari upplýsingar eða ert með fleiri spurningar þá er þér velkomið að hafa samband aftur.
Gangi þér vel.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna