Leit í töskum
stelpa
15
Má fólk td í skólanum eða í skólabúðum (á Reykjum eða Laugum) fara í gegnum töskurnar okkar án okkar leyfis byggt á grunnsemdum um síma, nammi eða slíkt sem er ekki leyfilegt á meðan við erum í búðunum? Er það ekki brot á persónu rétti okkar?
Komdu sæl
Nei, fólk í skólum eða skólabúðum má almennt ekki fara í gegnum töskur nemenda án leyfis, jafnvel þó það séu grunsemdir um að þeir séu með nammi eða síma á sér.
Börn njóta friðhelgi einkalífs eins og fullorðnir og það þýðir að það má yfirleitt ekki leita á börnum eða í töskum þeirra, án samþykkis. Það er bara lögregla sem hefur heimild til þess að leita á fólki að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og þá bara ef það er grunur um að það hafi framið afbrot, t.d. stolið einhverju. Þar sem foreldrar fara með forsjá yfir börnum sínum geta þeir líka stundum haft heimildir til þess að leita í dóti barna sinna, en þá bara ef þeir hafa góða ástæðu til að halda að það sé nauðsynlegt til þess að vernda þau.
Starfsfólk skóla og skólabúða hafa ekki heimildir til þess að leita á börnum eða í töskum þeirra, án samþykkis. Eina undantekning á þessu er ef það er sterkur grunur á því að barn sé að stefna sjálfu sér eða öðrum í hættu. Nemendur verða þó að sjálfsögðu að fylgja reglum í skólum og skólabúðum. Ef það kemur í ljós að barn er með eitthvað með sér sem er bannað, til dæmis nammi eða síma, getur starfsfólk brugðist við því í samræmi við þær reglur sem gilda.
Þú mátt endilega hafa samband aftur ef þú vilt ræða málið eða ert með frekari spurningar. Þú getur t.d. hringt í síma 800-5999 eða sent tölvupóst á ub@barn.is.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna