Kynlif 14 og 18 ára
strákur
15
Er leyfilegt fyrir ungling sem er 14 ára að stunda kynlíf með einstaklingi sem er 18 eða eldri? Ef ekki hvernig virkar það þá?
Komdu sæll
Það segir hvergi beint í lögum að unglingar þurfi að hafa náð ákveðnum aldri til að mega stunda kynlíf. Hins vegar er ákvæði í almennum hegningarlögum, þar sem segir að það sé refsivert að stunda kynlíf með einstaklingi sem er yngri en 15 ára. Þetta lagaákvæði miðar fyrst og fremst að því að vernda börn og unglinga fyrir misnotkun sér eldra fólks. Ef þetta lagaákvæði er brotið getur refsing orðið fangelsisvist. Lækka má refsingu eða láta hana falla niður, ef gerandi og þolandi eru á svipuðum aldri og þroskastigi. Þetta refsilækkunarákvæði myndi líklega ekki eiga við 4 ára aldursmun.
Þetta segir í lögunum, en það er síðan annað mál, að enginn ætti að byrja að stunda kynlíf með öðrum fyrr en hann er tilbúinn til þess sjálfur og gerir sér grein fyrir afleiðingum þess andlega og líkamlega. Það munar yfirleitt mjög miklu á reynslu og þroska 14 og 18 ára einstaklinga og í raun myndi mörgum eflaust þykja skrýtið að 18 ára einstaklingur eða eldri sýni 14 ára barni kynferðislegan áhuga.
Ef þig vantar upplýsingar um kynlíf og getnaðarvarnir þá ættir þú að hafa samband við skólahjúkrunarfræðinginn í skólanum þínum. Hann / hún getur líka frætt þig um áhættuna sem fylgir óábyrgu kynlífi.
Hér eru upplýsingar og slóðir ýmissa aðila og samtaka sem veita upplýsingar um kynheilbrigði, líkamann og sambönd.
Kveðja frá umboðsmanni barna