Klósettferðir á skólatíma
stelpa
16
Er í lagi að banna eða takmarka klósettferðir nemenda í skólum? Má kennari t.d. setja þá reglu að í kennslustund hjá honum séu klósettferðir ekki leyfðar?
Komdu sæl
Umboðsmaður barna á erfitt með að sjá að slíka reglur taki mið af því sem er nemendum fyrir bestu. Mikilvægt er að börnum líði vel í skólanum og ber því að haga stöfum skólans í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins. Þetta á við bæði um grunnskóla og framhaldsskóla.
Vissulega er best að nemendur noti frímínúturnar til að fara á klósettið en ef þeir þurfa að fara á klósettið í kennslustund finnst umboðsmanni eðlilegt að þeir megi það. Ef nemandi sem þarf að nota klósettið fær það ekki er hætta á að honum líði illa í kennslustund og nái ekki að fylgjast vel með. Ef kennari tekur eftir óvenjulega tíðum klósettferðum nemanda er að sjálfsögðu eðlilegt að bregðast við, til dæmis með því að ræða við foreldra, enda getur slíkt verið merki um veikindi eða andlega vanlíðan.
Ef nemendum finnast reglur um klósettferðir ósanngjarnar er eðlilegt að þeir óski eftir að ræða þær í skólanum og fá þær endurskoðaðar. Til dæmis er hægt að athuga hvort nemendafélagið (eða stjórn þess) vilji taka þetta mál upp.
Einnig geta foreldrar rætt málið sín á milli en formlega leiðin sem foreldrar hafa er í gegn um foreldrafélagið.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna