Hlutverk umboðsmanns
Getur umboðsmaður barna hjálpað til að koma mér á framfæri. Svona eins og ef ég væri leikari gætir þú þá fundið leikarastarf fyrir mig eða komið mér í áheyrnarprufur og þannig?
Hæ og takk fyrir erindið.
Gaman að heyra að þú viljir nýta hæfileika þína. Stutta svarið við spurningunni þinni er hins vegar nei! Umboðsmanni barna er ekki ætlað að hjálpa börnum að koma sér á framfæri í skemmtanaiðnaðinum eða á sviði lista og menningar. En það eru örugglega til einhverjar umboðsskrifstofur sem taka að sér að koma hæfileikaríkum krökkum á framfæri. Við mælum þó með að þú ræðir þessi mál við foreldra þína og sjá hvað þeim finnst, svona áður en þú heldur lengra.
Hlutverk umboðsmanns barna er að vinna að því að bæta hag barna og unglinga og gæta þess að tekið sé tillit til réttinda barna, þarfa og hagsmuna á öllum sviðum samfélagsins. Umboðsmaður barna leiðbeinir öllum sem til skrifstofunnar leita um hvert hægt er að snúa sér til að fá aðstoð við að leysa sín mál.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna