Bý í útlöndum og langar að læra íslensku
strákur
12
Ég á heima í útlondum og er í útlenskum skóla. Mig langar mikid til ad læra íslensku. Er einhver staður þar sem ég get spurt???
Komdu sæll
Mikið er gott að heyra að þú viljir læra íslensku þó að þú eigir heima í útlöndum.
Íslenskuskólinn er skóli á netinu, m.a. fyrir íslensk börn sem búsett eru um víða veröld.
Á heimasíðu Námsgagnastofnunar er heilmikið kennsluefni í íslensku. Einnig er Krakkasíða Námsgagnastofnunnar skemmtileg.
Hérna eru skilaboð til mömmu eða pabba.
Á síðu menntamálaráðuneytisins er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um námskrár og áfangamarkmið námskrár.
Gangi þér vel í íslenskunáminu!
Bestu kveðjur frá umboðsmanni barna á Íslandi