Um dvalarstað barna
stelpa
16
Hæ, ég vil vita hvort börn eigi ekki rétt á því að vera á þeim stað sem þeim líður best.
Komdu sæl.
Þú spyrð hvort börn eigi ekki rétt á að vera á þeim stað þar sem þeim líður best. Væntanlega átt þú við hvort börn geti ráðið því hvar eða hjá hverjum þau búa að staðaldri.
Um búsetu- og eða dvalarstað barna er fjallað í barnalögum.
Í 28. gr. laganna segir að þeir sem fari með forsjá barns, þ.e. forráðamenn/foreldrar þess, geti ákveðið hvar barnið býr. Það eru því foreldrar/forráðamenn sem í raun ákveða búsetustað barns fram að 18 ára aldri. Í lögunum er hins vegar jafnframt tekið fram að foreldrum beri skylda til þess að hafa samráð við barn sitt þegar ákvarðanir er varða persónuleg málefni þeirra eru teknar. Samkvæmt þessu ber foreldrum að taka tillit til vilja og afstöðu barns áður en þeir taka ákvörðun sem þessa, eftir því sem aldur og þroski barnanna segir til um. Þú segist vera 16 ára gömul. 16 ára unglingur ætti að hafa talsvert mikið um það að segja hvar hann býr, en forsjáraðilinn hefur þó alltaf lokaorðið.
Það er því nauðsynlegt að foreldrar og börn geti rætt saman þegar ákvörðun um búsetustað er tekin og æskilegt að börn geri foreldrum sínum grein fyrir því hvar þeim líður best.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna