Tölvuleikir sem eru bannaðir börnum
Má leyfa 12 ára krökkum að spila leiki sem eru fyrir 18 ára?
Hæ.
Nei, það má ekki, ef leikurinn er með aldursviðmið (PEGI) 18 ára þá þýðir það að í honum er efni sem þykir mjög ofbeldisfullt.
Það eru til lög um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum (lög nr. 62/2006). Í þeim segir að bannað sé að sýna börnum undir til ofbeldiskvikmyndir og -tölvuleiki, sem og kvikmyndir eða tölvuleiki sem ógna velferð þeirra.
Umboðsmaður barna getur því aldrei mælt með að börn séu að spila tölvuleiki sem ekki eru ætluð þeirra aldri.
Það eru til fullt af öðrum leikjum sem þú getur spilað í staðinn hvort sem er einn eða með öðrum og fela ekki í sér ofbeldi eða annað skaðlegt efni fyrir börn.
Góðar kveðjur frá umboðsmanni barna.