Nám í félagsráðgjöf og tómstundaráðgjöf
stelpa
17
Það er eitt sem mig langar að vita. Hvað þarf maður að læra til að verða félagsmálaráðgjafi? :D
Komdu sæl
Þú spyrð um félagsmálaráðgjöf. Gæti verið að þú sért að meina félagsráðgjöf? Eða e.t.v. starf tómstundaráðgjafa?
Til að starfa sem félagsráðgjafi þarft þú að ljúka meistaranámi í félagsráðgjöf til starfsréttinda. Fyrst þarft þú samt að ljúka BA-námi í félagsráðgjöf með fyrstu einkunn. Allar upplýsingar um félagsráðgjafarnámið finnur þú á vefsvæði Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands.
Til að starfa sem íþrótta- og tómstundaráðgjafi þarftu að hafa háskólagráðu, t.d. á sviði sálfræði, frístundafræða (kennt í Svíþjóð), kennarapróf/kennsluréttindi eða sambærilega háskólamenntun skv. upplýsingum frá Reykjavíkurborg.
Gangi þér vel.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna