Má ég flytja í mína eigin íbúð?
Má ég löglega flytja í mína eigin íbúð ef ég er undir 18? (Með samþykki foreldra)
Það er auðvitað mikilvægt að flytja ekki að heiman fyrr en maður er búinn að undirbúa sig og hefur þroska í það, en ef maður er tilbúinn og getur búið á góðum stað og foreldrar samþykkja það, þá er ekkert sem bannar það.
Gangi þér vel!
Með bestu kveðjum frá skrifstofu umboðsmanns barna