Langar að sofa hjá kærastanum
stelpa
12
hæ, hæ.ég er 12 ára og ég hef áður kysst strák í sleik en núna er ég með öðrum og okkur langar rosa að sofa hjá hvort öðru, megum við það?
Komdu sæl
Þú segir reyndar ekki hvað kærastinn þinn er gamall en þó svo að þið séuð jafningjar (svipað gömul) þá finnst umboðsmanni þú vera of ung til að vera að hugsa um að stunda kynlíf með öðrum. Það er nægur tími til að spá í þessa hluti síðar.
Það segir hvergi beint í lögum að unglingar þurfi að hafa náð ákveðnum aldri til að mega stunda kynlíf. Hins vegar er ákvæði í almennum hegningarlögum, þar sem segir að það sé refsivert að stunda kynlíf með einstaklingi sem er yngri en 15 ára. Þetta lagaákvæði miðar fyrst og fremst að því að vernda börn og unglinga fyrir misnotkun sér eldra fólks, sem vill nýta sér þroska- og reynsluleysi barnanna. Þetta segir í lögunum, en það er síðan annað mál, að enginn ætti að byrja að stunda kynlíf með öðrum fyrr en hann er tilbúinn til þess sjálfur og gerir sér grein fyrir afleiðingum þess andlega og líkamlega.
Í sambandi við kynlíf unglinga er mikilvægt að hafa í huga að hver og einn ræður yfir líkama sínum sjálfur og enginn annar hefur rétt til að ákveða hvað gert er við líkama þeirra. Einnig er mikilvægt að börn og unglingar tileinki sér virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Einstaklingur sem þekkir verðleika sína og býr yfir nægilegri sjálfsvirðingu til að setja mörk og sætta sig ekki við hvað sem er, á auðveldara með að sneiða hjá óæskilegri kynlífsreynslu. Kynlíf á að snúast um vellíðan, ánægju, virðingu, traust og ábyrgð. Mikilvægt er að sýna ábyrgð, lesa sér til um getnaðarvarnir og kynsjúkdóma og hafa í huga að kynlíf með öðrum getur bæði haft jákvæð og neikvæð áhrif á líkamlega og andlega líðan.
Í lokin má benda þér á frábæra síðu Ástráðs, www.astradur.is. og þennan bækling: Kynlíf og unglingar.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna