Kærustupar 14 og 18 ára
stelpa
14
Hey, er nokkuð hægt að kæra kærasta minn fyrir að sofa hjá mér eða ehv ? Ég er 14 og hann er 18. foreldrum minum er btw sama..
Komdu sæl
Í almennum hegningarlögum er ákvæði þar sem segir að það sé refsivert að stunda kynlíf með einstaklingi sem er yngri en 15 ára. Þetta lagaákvæði miðar fyrst og fremst að því að vernda börn og unglinga fyrir misnotkun sér eldra fólks.
Svona lítur ákvæðið út:
202. gr. Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við barn, yngra en 15 ára, skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Lækka má refsingu eða láta hana falla niður, ef gerandi og þolandi eru á svipuðum aldri og þroskastigi.
Önnur kynferðisleg áreitni en sú sem greinir í 1. mgr. varðar fangelsi allt að 6 árum.
Hver sem með blekkingum, gjöfum eða á annan hátt tælir barn yngra en 18 ára til samræðis eða annarra kynferðismaka skal sæta fangelsi allt að 4 árum.
…
Þegar lögunum var síðast breytt (en þá var m.a. aldursviðmiðið hækkað úr 14 í 15 ára) fylgdi frumvarpinu greinargerð sem á að útskýra betur hvað er átt við. Þar segir m.a:
Aldur geranda og þolanda skiptir miklu máli þegar metið er hversu alvarlegt brot er og refsing er ákveðin. Þeir eru á svipuðu þroskastigi þegar jafnræði er með þeim, bæði að líkamlegum þroska og andlegum. Þeir eru á svipuðum aldri þegar á milli þeirra eru 2–3 ár hið mesta. Bæði skilyrðin, um aldur og þroska, þurfa að vera fyrir hendi svo að ákvæðið eigi við.
Þó að foreldrar þínir viti hvað er í gangi og setja sig ekki upp á móti þessu þá er ekki hægt að útiloka að kærastinn verði kærður.
Ef þig vantar upplýsingar um kynlíf og getnaðarvarnir þá ættir þú að hafa samband við skólahjúkrunarfræðinginn í skólanum þínum, skoða www.astradur.is eða þessa góðu síðu.
Í lokin vill umboðsmaður biðja þig að hafa eftirfarandi í huga:
• Enginn ætti að byrja að stunda kynlíf með öðrum fyrr en hann er tilbúinn til þess sjálfur og gerir sér grein fyrir afleiðingum þess andlega og líkamlega.
• Hver og einn ræður yfir líkama sínum sjálfur og enginn annar hefur rétt til að ákveða hvað gert er við líkama þeirra.
• Kynlíf á að snúast um vellíðan, ánægju, virðingu, traust og ábyrgð.
• Mikilvægt er að unglingar tileinki sér virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Einstaklingur sem þekkir verðleika sína og býr yfir nægilegri sjálfsvirðingu til að setja mörk og sætta sig ekki við hvað sem er, á auðveldara með að sneiða hjá óæskilegri kynlífsreynslu.
• Mikilvægt er að sýna ábyrgð, lesa sér til um getnaðarvarnir, kynsjúkdóma og veirusmit og hafa í huga að kynlíf með öðrum getur bæði haft jákvæð og neikvæð áhrif á líkamlega og andlega líðan.
• Líkurnar á alvarlegum afleiðingum kynlífs, eins og kynsjúkdómum og þungunum, aukast eftir því sem unglingar byrja fyrr að stunda kynlíf og bólfélögum fjölgar.
Kveðja frá umboðsmanni barna