Hvað felst í barnasáttmálanum?
stelpa
16
Hvað felst í barnasáttmálanum?
Komdu sæl
Barnasáttmálinn kveður á um skyldur ríkisins til að tryggja börnum ýmis grunnréttindi.
Samningurinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á að börn séu hópur sem þarfnist sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu. Jafnframt felst í honum viðurkenning á því að börn séu sjálfstæðir einstaklingar með eigin réttindi - óháð réttindum hinna fullorðnu.
Barnasáttmálinn kveður á um vernd tiltekinna grundvallarmannréttinda barna, svo sem réttinn til lífs, friðhelgi fjölskyldu- og einkalífs, félaga-, skoðana-, tjáningar- og trúfrelsis. Jafnframt leggur hann skyldur á aðildarríkin til að tryggja velferð barna m.a. á sviði mennta-, heilbrigðis- og félagsmála.
Barnasáttmálinn hefur verið staðfestur af 192 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna og er hann sá mannréttindasamningur, sem hefur verið staðfestur að flestum þjóðum.
Hér getur þú lesið meira um Barnasáttmálann.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna