Heimanám
Má skólinn láta mig fá heimanám?
Hæ og takk fyrir erindið.
Í stuttu máli þá er svarið já, skólinn má setja nemendum fyrir heimanám. Í raun er heimanám talið vera mikilvægur hluti af námi sem stuðlar að sjálfstæðum vinnubrögðum og undurbýr nemendur fyrir frekara nám t.d. á efri stigum grunnskóla og í menntaskóla.
Samkvæmt Barnasáttmálanum eiga öll börn rétt til hvíldar og tómstundar og að stunda leiki og skemmtanir sem hæfa aldri þess. Þau eiga líka rétt á menntun og hér á Íslandi eru öll börn skólaskyld frá 6 - 16 ára. Það getur hins stundum verið erfitt að finna jafnvægi á milli heimanáms og frístunda barna. Þú ættir að ræða um þetta við kennarann þinn og aðra nemendur í bekknum þínum. Kannski getið þið rætt um heimanámið, tilgang þess og hvernig best sé að haga því meðal annars með tilliti til frístunda og hvíldar barna. Börn eiga rétt á því að á þau sé hlustað og að tekið sé tillit til skoðana þeirra og vilja svo framalega sem það fer ekki gegn hagsmunum þeirra.
Góðar kveðjur frá umboðsmanni barna