Eru til æfingar til að stækka brjóst
Stelpa
13
Hæ ég var að spá hvort það séu æfingar til að fá brjóst ég er ekki með nein brjóst, hef heldur ekki fengið verki
Hæ.
Við vitum ekki til þess að það séu til neinar æfingar sem fá brjóst til að vaxa hraðar. Það er mjög misjafnt hvenær brjóst byrja að stækka hjá stelpum og líka hvenær þau hætta að stækka. Brjóst geta verið allt að 4 – 5 ár að þroskast þannig að það er því algjör óþarfi að hafa áhyggjur af þessu núna því það getur margt gerst á næstu árum og jafnvel mánuðum. Það er líka mismunandi hvenær stelpur verða kynþroska. Sumar verða kynþroska snemma en aðrar seinna, það er alveg eðlilegt. Þú getur lesið meira um kynþroska stúlkna hér á vefsíðunni Heilsuvera.
Það er lítið hægt að gera til að hraða kynþroskanum eða breyta líkamsbyggingunni og við vitum ekki um neinar æfingar sem hafa áhrif á brjóstastærð. Svo getur holdafar líka skipt máli. Ef þú ert grönn er alveg eðlilegt að þú hafir lítil brjóst. Því er best að hugsa vel um sig og reyna að vera ánægður með líkama sinn eins og hann er.
Við viljum benda þér á nokkrar síður sem gæti verið gagnlegt fyrir þig að kíkja á.
- www.heilsuvera.is - Á vefsíðunni Heilsuvera er heilmikill fróðleikur um allt sem viðkemur líkamlegu og andlegu heilbrigði. Þar er sérkafli um kynheilbrigði og þar undir er kafli um kynþroska þar sem má lesa ýmislegt um kynþroska hjá stelpum. Neðst á síðunni er netspjall þar sem hægt er að fá samband við hjúkrunarfræðing.
- www.attavitinn.is - Á vefsíðu Áttavitans er bæði hægt að senda inn fyrirspurnir um allt sem helst brennir á ungu fólki og lesa svör við spurningum sem þar hafa borist.
- https://mms.is/namsefni/alls-kyns-um-kynthroskann-fraedslumynd-fyrir-midstig - Svo er hér hægt að sjá fræðslumyndina „Alls kyns um kynþroskann“ sem er aðgengileg á vefsíðu Menntamálastofnunar.
Vonandi svarar þetta þér einhverju en ef þú hefur miklar áhyggjur af brjóstastærð þá gæti verið gagnlegt fyrir þig að ræða um það við einhvern fullorðinn sem þú treystir. Það gætu t.d. verið foreldrar þínir, hjúkrunarfræðingur í skólanum eða heilsugæslunni eða aðrir fullorðnir sem þú treystir vel.
Gangi þér vel.
Kær kveðja frá umboðsmanni barna