Fréttir: apríl 2013

Fyrirsagnalisti

30. apríl 2013 : Reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustað

Hinn 16. apríl 2013 birti velferðarráðuneytið á heimasíðu sinni drög að reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustað til kynningar og umsagnar, sjá frétt hér. Umboðsmaður barna sendi umsögn sína með tölvupósti dags. 30. apríl 2013.

30. apríl 2013 : Árangur af stuðningsúrræðum fyrir börn, unglinga og foreldra þeirra - Málþing

Árlegt málþing Ís-Forsa er haldið í samstarfi við Barnaverndarstofu og Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd. Umfjöllunarefni og yfirskrift málþingsins er árangur af stuðningsúrræðum fyrir börn, unglinga og foreldra þeirra. Málþingið verður 14. maí 2013 kl. 14.00-16.00 í Háskóla Íslands, Odda, stofu 101.

30. apríl 2013 : Tillögur um með hvaða hætti skuli staðið að samskiptum skóla og trúfélaga á öllum skólastigum

Mennta- og menningarmálaráðuneytið skipaði hinn 4. október 2012 starfshóp til þess að leggja fram tillögur um með hvaða hætti skuli staðið að samskiptum skóla og trúfélaga á öllum skólastigum. Nú hefur hópurinn skilað tillögum um samskipti skóla og trúfélaga á öllum skólastigum og á grunni þeirra hefur ráðherra gefið út meginviðmið um efnið.

26. apríl 2013 : Námsferð til Írlands og N-Írlands

Dagana 14. – 19. apríl fór starfsfólk umboðsmanns barna í námsferð til systurembætta sinna á Írlandi og Norður Írlandi til að kynna sér starf þeirra með þátttöku barna í samfélaginu.

24. apríl 2013 : Morgunverðarfundir um menntun innflytjenda

Morgunverðarfundur verður haldinn föstudaginn 3. maí kl. 8-10 á Grand hótel Reykjavík.Yfirskriftin er "Virkt tvítyngi - íslenskukennsla fyrir nemendur með íslensku sem annað mál og móðurmálskennsla nemenda af erlendum uppruna."

23. apríl 2013 : Barnamenningarhátíð í Reykjavík

Barnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík dagana 23.-28. apríl 2013. Þar verður að finna fjölda viðburða sem börn og fullorðnir, í fylgd með börnum, geta sótt sér að kostnaðarlausu út um alla borg!

22. apríl 2013 : Fyrirlestrar um ýmsa málaflokka sem snerta börn

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á viðburði sem samtökin Regnbogabörn standa fyrir í Háskólabíói, sal 1, dagana 22., 23. og 24. apríl nk.

22. apríl 2013 : Hádegisrabb RannUng - Börnin vilja gjarnan innrétta sjálf

Í hádegisrabbi RannUng þriðjudaginn 7. maí mun Fanný Heimisdóttir fjalla um meistararitgerð sína. Í rabbinu verður fjallað um hvernig deildarstjórarnir framselja vald yfir umhverfinu til barnanna ásamt því að fjalla um aðferðafræði rannsóknarinnar.

15. apríl 2013 : Breytingar á þjónustu í þessari viku

Í þessari viku mun starfsfólk embættis umboðsmanns barna vera fjarverandi vegna endurmenntunar. Þess vegna verður þjónusta skrifstofunnar í lágmarki. Talhólf verður sett upp og starfsfólk mun athuga það a.m.k. tvisvar á dag.
Síða 1 af 2

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica