Fréttir
Eldri fréttir: 2011 (Síða 6)
Fyrirsagnalisti
Umboðsmaður barna á Suðurlandi
Umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir, og Eðvald Einar Stefánsson starfsmaður embættisins hafa í gær og í dag farið um Suðurland og heimsótt grunnskóla.
Málþing um sameiginlega forsjá
Umboðsmaður barna vill vekja athygli á málþingi um sameiginlega forsjá og heimild dómara til að dæma sameiginlega forsjá. Málþingið verður haldið á vegum Rannsóknarstofnunar Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni (RÁS) og Rannsóknarstofnunar í barna- og fjölskylduvernd (RBF) föstudaginn 14. október 2011, kl. 14.00-16.00 í stofu 104 á Háskólatorgi.
Ný skýrsla: Ungt fólk 2011 – Grunnskólanemar í 5. – 7. bekk
Nýjasta skýrsla Rannsókna & greiningar um hagi og líðan ungs fólks á Íslandi er komin út. Skýrslan ber heitið Ungt fólk 2011 – Grunnskólanemar í 5. – 7. bekk.
Forvarnardagurinn er í dag
Forvarnardagur 2011 er haldinn í dag, miðvikudaginn 5. október. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.
Morgunverðarfundur - Til að forvarnir virki
Morgunverðarfundur Náum áttum verður haldinn 12. október nk. kl. 8:15-10:00 á Grand Hótel Reykjavík. Yfirskrift fundarins er „Til að forvarnir virki".
Endurbættur ábendingahnappur á netinu
Tekinn hefur verið í notkun ný ábendingahnappur til að tilkynna ólöglegt og óviðeigandi efni tengt börnum á netinu.
Fyrirtaka Íslands hjá Barnaréttarnefndinni í Genf
Föstudaginn 23. september 2011 var íslenska ríkið tekið fyrir hjá Barnaréttarnefndinni í Genf. Nefndin fór yfir skýrslu stjórnvalda um það hvernig íslenska ríkið uppfyllir Barnasáttmála Sameinuðu þjónanna og spurði íslensku sendinefndina spurninga um stöðu mála, m.a. með hliðsjón af skýrslum umboðsmanns barna og frjálsra félagasamtaka.
Kynning á Ungt fólk 2011 – Grunnskólanemar í 5., 6. og 7. bekk
Æskulýðsrannsóknin Ungt fólk 2011 – Grunnskólanemar í 5., 6. og 7. bekk verður kynnt þriðjudaginn 27. september í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík. Kynningin hefst klukkan 13:30.
Náum áttum morgunverðarfundur - Frístundir, áhætta, forvarnir
Morgunverðarfundur „Náum áttum" verður haldinn 28. september nk. kl. 8:15-10:00 á Grand Hótel Reykjavík. Umfjöllunarefni fundarins er „Frístundir,áhætta, forvarnir" Fyrirlesarar eru Jóhanna Rósa Arnardóttir, Árni Guðmundsson, Eygló Rúnarsdóttir og Ómar Bragi Stefánsson.
Síða 6 af 16