Fréttir
Eldri fréttir: 2007
Fyrirsagnalisti
Jólakveðja
Umboðsmaður barna og starfsfólk hans senda öllum börnum og fjölskyldum þeirra sem og samstarfsaðilum embættisins bestu óskir um hamingjuríka jólahátíð og heillaríkt komandi ár.
Opið hús fimmtudaginn 20. desember
Umboðsmaður barna verður með opið hús næsta fimmtudag, 2. desember, frá kl. 10 til kl. 11:30. Leikskólabörn frá Njálsborg syngja jólalög og sr. Hjálmar Jónsson flytur hugvekju. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og smákökur. Allir hjartanlega velkomnir.
Ný menntastefna
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi fjögur frumvörp til nýrrar menntastefnu. Opnaður hefur verið vefur, www.nymenntastefna.is, þar sem m.a. er hægt að nálgast frumvörpin, skoða svör við ýmsum álitamálum, fylgjast með umræðum um málið á Alþingi og senda fyrirspurnir um frumvörpin og þær breytingar sem þau fela í sér.
Ársskýrsla umboðsmanns barna komin út
Samkvæmt 8. gr. laga nr. 83/1994 um umboðsmann barna hefur embætti umboðsmanns barna tekið saman skýrslu til forsætisráðherra um starfsemi embættisins.Skýrslan tekur til tímabilsins 1. janúar 2006 til 30. júní 2007.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006/, 209. mál.
Félags- og tryggingamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um breytingu á lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006/, 209. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með bréfi dags. 5. desember 2007.
Börn með fötlun - Fréttatilkynning
Föstudaginn 7. des. kl. 8:30 verður umboðsmaður barna í Öskuhlíðarskóla. Þá koma nemendur skólans saman á söngsal og synja jólalög og í framhaldi af því kemur Möguleikhúsið og sýnir jólaleikrit. Fjölmiðlar eru velkomnir að koma á staðinn og fyljast með hvað er að gerast í Öskjuhlíðarskóla þennan dag.
75 ára afmæli fyrstu barnaverndarlaga á Ísland
Á hátíð í tilefni 75 ára afmælis fyrstu barnaverndarlaga á Íslandi sem gildi tóku árið 1932 og haldin var í Hátíðarsal Háskóla Íslands síðastliðinn föstudag voru fimm einstaklingar heiðraðir fyrir að hafa markað djúp spor í sögu barnaverndar.
Heimsóknir í Safamýrarskóla og sérdeild Hlíðaskóla
Í dag, 4. desember, fór umboðsmaður barna, Margrét María, ásamt starfsmanni embættisins, Eðvald Einari, í heimsókn í Safamýraskóla og Hlíðaskóla. Sá fyrri er sérskóli en síðari er almennur skóli með sérdeild fyrir börn með fötlun.
Frumvarp til laga um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003, með síðari breytingum, 149. mál.
Allsherjarnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003, með síðari breytingum, 149. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með bréfi dags. 3. desember 2007.
Síða 1 af 15
- Fyrri síða
- Næsta síða