Ljót orð
Er allt mér að kenna sem drengurinn sagði? Hann sagðist ætla barna mig og "dry humpa" mig. Og margt fleira
Hæ.
Þú berð ekki ábyrgð á því sem aðrir segja. Við berum öll ábyrgð á okkur sjálfum og það er mikilvægt að muna að þó allir hafi rétt á því að tjá skoðanir sínar þá berum við líka ábyrgð á að meiða ekki aðra með því sem við segjum.
Það er mikilvægt að þú látir foreldra þína vita af þessu, ef þú treystir þér ekki til þess að ræða þetta við þau getur þú rætt við einhvern annan fullorðin sem þú treystir til dæmis ömmu, afa, frændfólk eða umsjónarkennarann þinn. Það er mikilvægt að þú finnir einhvern fullorðin sem þú treystir til þess að ræða þetta við og sem getur veitt þér stuðning. Ef þessar hótanir eru að eiga sér stað innan skólans er mikilvægt að kennarar séu látnir vita til þess að hægt sé að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur.
Góðar kveðjur frá umboðsmanni barna