Kynferðisbrot og káf
Ef manneskja heldur mér niðri og lætur aðra manneskju snerta mig á einkastöðum er það kynferðisbrot?
Hæ og takk fyrir spurninguna.
Já, það er kynferðisbrot ef einhver heldur þér niðri og lætur aðra manneskju snerta þig á einkastöðunum þínum. Það er mjög alvarlegt ef einhver gerir það og því er mjög mikilvægt að láta einhvern fullorðinn vita af því.
Það væri gott að segja foreldrum þínum frá þessu atviki en ef þú treystir þér ekki til þess að gera það ein þá getur þú haft einhvern annan fullorðinn eða vinkonu eða vin með þér.
Þú getur líka sagt einhverjum öðrum fullorðnum sem þú treystir frá þessu, til dæmis umsjónarkennaranum þínum, skólahjúkrunarfræðingnum, ömmu, afa, frænku, frænda eða námsráðgjafanum í skólanum þínum, því það er mjög mikilvægt að láta vita af svona atvikum sem manni líður ekki vel með til að fá aðstoð.
Það eiga allir rétt á því að fá að hafa sinn líkama í friði og að fá sjálfir að velja, hvort einhver snertir mann. Það má enginn snerta mann án leyfis og sérstaklega ekki ef manni er haldið niðri af öðrum aðila á meðan. Börn eiga alls konar mannréttindi eins og t.d. réttinn til þess að fá vernd gegn öllum tegundum ofbeldis. Hér getur þú lesið meira um mannréttindi barna.
Hér getur þú lesið meira um mismunandi tegundir kynferðisofbeldis og hvert er hægt að hafa samband til þess að tala um það við einhvern ef maður hefur orðið fyrir slíku.
Með góðri kveðju frá umboðsmanni barna