Eftirseta
strákur
14
Hafa stjórnendur í grunnskóla leyfi til þess að setja nemdur í 20 mín eftirsetu eftir að hafa komið 3 sinnum of seint í skólann ?
Komdu sæll
Já, þeir hafa leyfi til þess EF það segir svo í reglum eða samþykktum skólans. Þá er alveg eðlilegt að nemendur þurfi að sitja eftir í 20 mínútur þegar þeir hafa komið þrisvar sinnum of seint.
Það sem er mikilvægast er að skólareglurnar og viðurlögin við brotum á þeim séu vel kynntar fyrir nemendum, foreldrum og starfsfólki skólans og aðgengilegar á heimasíðu skólans.
Umboðsmaður barna hefur gagnrýnt það þegar viðurlög eru ekki í samræmi við brot á skólareglum en í þessu tilviki virðist eðlilegt samræmi vera þarna á milli, þ.e. þeir sem missa úr tíma í byrjun skóladags þurfa að bæta við tíma í lok skóladags.
Kveðja frá umboðsmanni barna