Rit og skýrslur
Hér er að finna útgefnar skýrslur umboðsmanns barna
2024
Skýrsla barnaþings 2023
Fundur barna frá Grindavík
Bið barna eftir þjónustu
2023
Barnasáttmálinn og réttindi barna - skýrsla um stöðu barna lögð fram á barnaþingi 2023
Mat á því sem er barni fyrir bestu
Til þess að uppfylla skilyrði barnasáttmálans þarf að leggja mat á það sem er barni fyrir bestu, áður en ráðist er í aðgerðir sem varða börn, með beinum eða óbeinum hætti. Eftirfarandi leiðbeiningar fjalla um framkvæmd matsins og mismunandi þætti þess.
Innleiðing Barnasáttmálans - niðurstaða könnunar 2022
Upplýsingar um stöðu á innleiðingu barnasáttmálans hjá ráðuneytum og ríkisstofnunum í lok árs 2022.
2022
Áhrif heimsfaraldurs Covid-19 á líf barna á Íslandi
Niðurstöður greiningar á fjórum gagnasöfnum umboðsmanns barna. Útgefið í október 2022.
Frásagnir barna - sóttvarnaráðstafanir
Umboðsmaður barna safnaði frásögnum frá börnum um reynslu af því að vera börn á tímum heimsfaraldurs. Hér var sjónum beint að sóttkví, sýnatöku og einangrun.
Börn fanga - hin þöglu fórnarlömb fangelsunar
- Í þessari skýrslu eru birtar niðurstöður verkefnis sem unnið var fyrir umboðsmann barna með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna um börn fanga og stöðu og greiningu á þeirra réttindum. Verkefnið var unnið af Lilju Katrínu Ólafsdóttur, lögfræðingi og Daníel Kára Guðjónssyni, meistaranema í afbrotafræði.
Skýrsla barnaþings 2022
- Í þessari skýrslu eru birtar helstu niðurstöður barnaþings sem haldið var 4. mars 2022. Barnaþingmenn unnu í sameiningu að því að finna nýjar leiðir og lausnir á fjölbreyttum viðfangsefnum.
Barnasáttmálinn og réttindi barna á tímum heimsfaraldurs - skýrsla umboðsmanns barna lögð fram á barnaþingi 2022
- Skýrsla umboðsmanns barna sem lögð var fram á barnaþingi 2022 um Barnasáttmálann og réttindi barna á tímum heimsfaraldurs.
2021
Frásagnir barna - framtíðarsýn
Frásagnir barna af heimsfaraldri
2020
Frásagnir barna af kórónuveirunni
Niðurstöður könnunar um innleiðingu Barnasáttmálans
Skýrsla með niðurstöðum könnunar um innleiðingu Barnasáttmálans , samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins hjá ráðuneytum og ríkisstofnunum. Könnunin er liður í því lögbundna verkefni embættisins að fylgjast með þróun og túlkun Barnasáttmálans og því að hann sé virtur.
- Innleiðing Barnasáttmálans - niðurstöður könnunar meðal ríkisstofnana 2020
- Niðurstöður á auðlesnu máli - stytt útgáfa
Skýrsla til barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna
Skýrsla umboðsmanns barna til barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna þar sem settar eru fram ábendingar um aðgerðir sem stjórnvöld verða að grípa til og sem miða að áframhaldandi innleiðingu Barnasáttmálans, samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.
- Supplementary report from the Ombudsman for children in Iceland (skýrslan á ensku)
- Skýrslan á auðlesnu máli - stytt útgáfa
Skýrsla barnaþings 2019
Skýrsla með niðurstöðum barnaþings sem haldið var í Hörpu 21. - 22. nóvember 2019.
Þátttaka barna í stefnumótun og ákvörðunum
Á vormánuðum 2019 undirrituðu félags- og barnamálaráðherra og umboðsmaður barna, samkomulag um aukið samstarf í málefnum barna. Með samkomulaginu tók embætti umboðsmanns barna að sér að móta tillögur um breytt verklag um þátttöku barna sem settar eru fram í þessari skýrslu sem skilað var til ráðuneytisins í desember 2019 .
2019
Skýrsla umboðsmanns barna - lögð fram á barnaþingi 21. - 22. nóvember
Skýrsla þessi um stöðu í málefnum barna í íslensku samfélagi er lögð fyrir barnaþing samkvæmt 6. gr. a. laga um umboðsmann barna, nr. 83/1994. Markmið skýrslunnar er að gefa yfirlit yfir stöðu og þróun í málefnum.
Vinnuskóli fyrir ungmenni - niðurstöður könnunar meðal sveitarfélaga
Niðurstöður könnunar meðal sveitarfélaga um vinnuskóla fyrir ungmenni. Helstu niðurstöður eru þær að meirihluta ungmenna á aldrinum 13 - 15 ára stendur til boða starf í vinnuskóla sveitarfélaga.
Sérfræðihópur fatlaðra barna - samantekt úr niðurstöðum
Skýrsla með niðurstöðum sérfræðihóps fatlaðra barna og unglinga. Þar koma fram ábendingar hópsins um
það sem betur má fara í málefnum fatlaðra barna og unglinga. Þær snúa meðal annars að aðgengi, ferðaþjónustu, upplýsingagjöf, tómstundastarfi, fordómum, virðingu í samskiptum, einelti og ofbeldi.
1995 - 2018
Helstu áhyggjuefni 2017
Skýrsla þar sem fjallað er um þær athugasemdir sem umboðsmaður barna telur brýnast að koma á framfæri við umboðsmannaskiptin 2017.
Opna skýrsluna "Helstu áhyggjuefni 2017".
Í hinum fullkomna heimi er enginn alkóhólismi! – sjónarmið barna alkóhólista
Skýrsla þar sem tekin eru saman sjónarmið barna sem hafa alist upp við mikla áfengis- eða vímuefnaneyslu foreldra og upplifað óvissu og álag í tengslum við hana. Í skýrslunni er að finna skilaboð frá börnum alkóhólista til fullorðinna. Börn alkóhólista er fyrsti sérfræðihópur umboðsmanns barna. Skýrslan var unnin í samstarfi við Barnahjálp SÁÁ og gefin út 2014.
Opna skýrsluna Í hinum fullkomna heimi er enginn alkóhólismi! – sjónarmið barna alkóhólista
Skýrsla umboðsmanns barna til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna
Í skýrslunni bendir umboðsmaður barna á það sem betur mætti fara varðandi framkvæmd Barnasáttmálans á Íslandi. Útgefin 2010 á íslensku og ensku.
Opna skýrslu umboðsmanns barna til nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins 2010 (pdf).
Líðan barna - könnun umboðsmanns barna 2010
Niðurstöður könnunar um líðan barna sem umboðsmaður barna lagði fyrir um 1350 nemendur 5. - 7. bekkja grunnskóla. Spurt var um líkamlega kvilla, líðan, öryggi, ofbeldi, samskipti nemenda og starfsfólks í skólanum, vináttu, áhyggjur, tengsl við foreldra o.fl.
Opna skýrsluna Líðan barna 2010 (pdf).
Hvernig er að vera barn á Íslandi?
Í þessari bók er að finna teikningar og texta leik- og grunnskólabarna sem tóku þátt í verkefni umboðsmanns barna Hvernig er að vera barn á Íslandi? veturinn 2008 til 2009. Sameinuðu þjóðanna, 20. nóvember 2009.
Opna bókina: Hvernig er að vera barn á Íslandi? (pdf)
Ungir Íslendingar í ljósi vísindanna
Bókin er afrakstur málþings sem haldið var á vegum umboðsmanns barna og rektors Háskóla Íslands í nóvember 2004. Ritið hefur að geyma 36 fræðileg erindi um stöðu og hagi barna og unglinga á Íslandi, auk formála og lokaávarps. Bókin spannar vítt svið félags-, hug- og raunvísinda og var gefin er út í samstarfi við Háskóla Íslands árið 2005. Bókin er uppseld.
Skoða efnisyfirlit bókarinnar Ungir Íslendingar í ljósi vísindanna (pdf)
Heimilisofbeldi gegn börnum á Íslandi. Höggva - hýða - hirta - hæða - hafna - hrista - hræða
Ofbeldi gegn börnum og refsingum í tímans rás er lýst og gerð grein fyrir umræðu fagfólks og annarra um viðfangsefnið og helstu niðurstöðu rannsókna kynntar. Bókinni er ætlað að styðja við forvarnir hér á landi, í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Bókin var gefin út í samstarfi við Miðstöð heilsuverndar barna árið 2004.
Friðhelgi einkalífs
Skýrsla um friðhelgi einkalífs og til trúnaðar af hálfu opinberra starfsmanna. Skýrslan er unnin af Ragnheiði Thorlacius lögfræðingi fyrir umboðsmann barna árið 2003.
Opna Friðhelgi einkalífsins (pdf).
Streita í lífi grunnskólabarna
Skýrsla um viðhorf ráðgjafarbekkja umboðsmanns barna og fulltrúa í nemendaráðum grunnskólanna. Útgefin í desember 2003.
Opna Streita í lífi grunnskólabarna (pdf).
Þau sem erfa munu landið ... ná ekki eyrum okkar
Bæklingur um 12. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, unninn í samvinnu við mannréttindahóp ELSA, sem eru samtök evrópskra laganema. Bent er á leiðir fyrir stjórnvöld til að tryggja rétt barna og unglinga til áhrifa. Útgefinn 2002. Uppseldur.
Netþing - annað unglingaþing umboðsmanns barna
Skýrsla um framkvæmd og niðurstöður annars NetÞings umboðsmanns barna, sem haldið var 2001. Útgefin 2001.
Opna Netþing - annað unglingaþing umboðsmanns barna (pdf).
Netþing - fyrsta unglingaþing umboðsmanns barna
Skýrsla um framkvæmd og niðurstöður NetÞings - unglingaþings umboðsmanns barna, sem haldið var veturinn 1999-2000. Útgefin 2000.
Opna Netþing - fyrsta unglingaþing umboðsmanns barna (pdf).
Einelti kemur öllum við
Skýrsla um ráðstefnu umboðsmanns barna um einelti á Hótel Sögu, 17. október 1998. Í skýrslunni eru settar fram helstu niðurstöður ráðstefnunnar. Útgefin1999.
Opna Einelti kemur öllum við (pdf).
Ungir hafa orðið
Ræður framsögumanna á málþingum umboðsmanns barna um réttinda- og hagsmunamál barna og unglinga. Útgefin 1998.
Mannabörn eru merkileg
Staðreyndir um börn og unglinga. Í þessari handbók var safnað saman á einn stað, í fyrsta sinn hér á landi, öllum helstu staðreyndum um börn og unglinga á Íslandi. Útgefin 1998.
Skoða efnisyfirlit og formála handbókarinnar Mannabörn eru merkileg (pdf).
Heggur sá er hlífa skyldi
Skýrsla um kynferðisbrot gegn börnum og ungmennum. Í skýrslunni eru m.a. tillögur umboðsmanns barna til að bæta réttarstöðu barna sem fórnarlamba kynferðisbrota. Útgefin 1997.
Opna Heggur sá er hlífa skyldi (pdf).
Meira sólskin - fleiri pizzur
Viðhorf unglinga í vinnuskólum - skoðanakönnun sumarið 1996. Útgefin 1997.
Opna Meira sólskin - fleiri pizzur (pdf).
Að mega lýsa og koma á framfæri skoðunum sínum við fullorðna
Niðurstöður könnunar umboðsmanns barna á starfsháttum nemendaráða grunnskóla skólaárið 1995-1996. Útgefin 1996.
Opna Að mega lýsa og koma á framfæri skoðunum sínum við fullorðna (pdf).
Ofbeldi í sjónvarpi
Úttekt á framboði ofbeldisefnis í íslensku sjónvarpi 2.-15. september 1996. Útgefin 1996.
Opna Ofbeldi í sjónvarpi (pdf).
Hvað er til ráða?
Bæklingur um áhrif ofbeldisefnis í sjónvarpi á börn. Bæklingurinn var gefinn út í samstarfi við félag íslenskra barnalækna.