Réttindi barna sem til álita koma

Hvernig á að túlka það sem barni er fyrir bestu?

Það skiptir meginmáli að gengið sé úr skugga um það hvaða réttindi barna koma til álita við meðferð tiltekins máls áður en framkvæmd matsins á því sem börnum er fyrir bestu hefst. Barnasáttmálinn er vegvísir á þeirri vegferð en ávallt ber að líta til meginreglna sáttmálans við matið á því sem börnum er fyrir bestu.

Meginreglur Barnasáttmálans

2. grein - Jafnræði - bann við mismunun

Öll börn skulu njóta réttinda Barnasáttmálans án tillits til kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúar, stjórnmálaskoðana, ætternis, fötlunar, félagslegrar stöðu eða annarra aðstæðna þeirra eða stöðu eða athafna foreldra þeirra.

3. grein. Það sem er barninu fyrir bestu

Allar ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn skulu byggðar á því sem er börnum fyrir bestu. Setja á lög og reglur sem tryggja börnum þá vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst. Aðildarríki eiga að sjá til þess að stofnanir og þjónusta sem annast börn uppfylli reglur sem stjórnvöld hafa sett, sérstaklega um öryggi, heilsuvernd, fjölda og hæfni starfsmanna og yfirumsjón.

6. grein. Réttur til lífs og þroska

Sérhvert barn á meðfæddan rétt til lífs og skulu aðildarríkin tryggja að það megi lifa og þroskast.

12. grein. Réttur til að láta skoðanir sínar í ljós og til að hafa áhrif

Börn eiga rétt á að láta í ljós skoðanir sínar í öllum málum er varða þau og að tekið sé réttmætt tillit til skoðana þeirra í samræmi við aldur þeirra og þroska. Börnum skal veitt tækifæri til að tjá sig um eigin málefni við málsmeðferð fyrir dómi eða stjórnvaldi.


Nánar um Barnasáttmálann og meginreglur hans

Einnig má styðjast við almennar leiðbeiningar barnaréttarnefndarinnar nr. 14, en í liðum nr. 53-79 telur nefndin upp atriði sem mikilvæg eru að taka tillit til við mat á því sem börnum er fyrir bestu.

Aðrir samningar og sáttmálar

Aðrir alþjóðlegir samningar og sáttmálar geta komið til álita við matið á því sem börnum er fyrir bestu, eins og t.d. samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og alþjóðasamningur um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Alþjóðasamningur um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi


Næsti kafli - Öflun gagna og upplýsinga og könnun á regluverki

Til baka í efnisyfirlit


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica