META

Kafli 2

Mat lagt á fyrirliggjandi upplýsingar

Á þessu stigi þarf að meta hvernig hægt sé að tryggja réttindi barna með sem bestum hætti. Það þarf einnig að greina mögulegar afleiðingar á stöðu barna og réttindi þeirra og ákveða hvað myndi vera í samræmi við bestu hagsmuni barna. 

 

 

Sérstaklega þarf að beina sjónum að börnum í viðkvæmri stöðu. Í sumum tilvikum getur það sem er börnum almennt fyrir bestu haft neikvæð áhrif á hagsmuni ákveðinna hópa barna. Ef sú staða kemur upp og það er óumflýjanlegt að börn verði fyrir neikvæðum áhrifum þarf að greina til hvaða mótvægisaðgerða sé hægt að grípa til þess að tryggja réttindi þess hóps.

Þá þarf að greina þau áhrif sem mismunandi hópar barna koma til með að verða fyrir. Leggja ber mat á það hvort um sé að ræða jákvæðar eða neikvæðar afleiðingar og hvort mismunandi valkostir séu til þess fallnir að efla réttindi barna, draga úr þeim eða hvort einhverjir valkostir hafi lítil sem engin áhrif á réttindi barna. Hér þarf að leggja mat á áhrifin til bæði skemmri og lengri tíma.

Vægi afleiðinga getur verið mismunandi í hverju máli fyrir sig, viðkvæm staða barna hefur t.d. mikla þýðingu hvað varðar afleiðingar fyrir börn sem eru í viðkvæmri stöðu í sínu lífi t.d. vegna fötlunar, fátæktar eða aðstæðna á heimilum barna.

Skoðanir barna geta skipt grundvallarmáli hvað þetta varðar og ef valin er leið sem er ekki í samræmi við skoðanir barnanna þarf að rökstyðja þá niðurstöðu sérstaklega.

Ef ekki verður hjá því komist að börn verði fyrir neikvæðum afleiðingum á að greina til hvaða mótvægisaðgerða sé hægt að grípa til þess að koma til móts við réttindi barna.

Framkvæma þarf formlegt og heildstætt mat á afleiðingum til þess að hægt sé að greina með hvaða hætti sé hægt að tryggja réttindi barna og komast að niðurstöðu um hvað sé börnum fyrir bestu.

 

Mikilvægar spurningar

 

  • Hvernig er sem best hægt að tryggja réttindi barna í viðkomandi máli?
  • Verða börn fyrir mismunandi áhrifum og verða einhverjir hópar barna fyrir neikvæðum áhrifum?

  • Er þörf á mótvægisaðgerðum til þess að draga úr neikvæðum áhrifum á ákveðna hópa barna?

  • Rökstyðja þarf ef fyrir valinu verður valkostur sem fer gegn óskum og sjónarmiðum barna.

 


 

Aðrir samningar og sáttmálar...

Aðrir alþjóðlegir samningar og sáttmálar geta komið til álita við matið á því sem börnum er fyrir bestu, eins og t.d. samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og alþjóðasamningur um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi.


 

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica