Fréttir


Eldri fréttir: 2015 (Síða 5)

Fyrirsagnalisti

28. maí 2015 : Ungbörnum mismunað eftir stöðu foreldra

Umboðsmaður barna sendi nýlega bréf til félagsmálaráðherra þar sem hann skorar á ráðherra til þess að beita sér fyrir því að lög um fæðingar- og foreldraorlof verði endurskoðuð, þannig að börnum verði ekki mismunað með ómálefnalegum hætti eftir stöðu foreldra þeirra.

11. maí 2015 : Frumvarp til laga um meðferð einkamála o.fl. (aukin skilvirkni, einfaldari reglur), 605. mál

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um meðferð einkamála o.fl. (aukin skilvirkni, einfaldari reglur), 605. mál. Umsögn sína veitt umboðsmaður með tölvupósti dags. 11. maí 2015.

8. maí 2015 : Aðgerðir á intersex börnum

Umboðsmaður barna hefur gefið út álit um aðgerðir á intersex börnum, þ.e. börnum sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni. Þegar líkama intersex barna er breytt með varanlegum hætti, í þeim tilgangi að „laga“ hann, getur það haft verulega neikvæðar afleiðingar í för með sér fyrir barnið.

7. maí 2015 : Málþing um heimilisofbeldi

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á málþingi um heimilisofbeldi sem haldið verður í Háskólanum í Reykjavík föstudaginn 15. maí nk. kl 13-17.

30. apríl 2015 : Ungmennaráð funda með menntamálaráðherra

Í gær funduðu fulltrúar frá ráðgjafarhópi umboðsmanns barna, ungmennaráði Barnaheilla og ungmennaráði UNICEF með mennta- og menningarmálaráðherra. Á fundinum var rætt um helstu málefnin sem brenna á ungmennaráðunum varðandi menntamál.

24. apríl 2015 : Flóttafólk

Ríkisstjórnir, Evrópusambandið og alþjóðasamfélagið verða að bregðast við með fyrirbyggjandi hætti til að bjarga lífi flóttafólks og ættu að endurskoða stefnu sína í þeim tilgangi að meta og koma í veg fyrir stórfelldan flótta fólks, þ.á.m. barna.

9. apríl 2015 : Morgunverðarfundur um einelti

Umboðsmaður barna vekur athygli á fræðslufundi Náum áttum samstarfshópsins á Grand hótel Reykjavík miðvikudaginn 15. apríl nk. kl. 8:15 - 10:00. Að þessu sinni verður fjallað um "Einelti - úrræði og forvarnir".

26. mars 2015 : Frumvarp til laga um úrskurðarnefnd velferðarmála, 207. mál.

Velferðarnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um breytingatillögu, með tilliti til barnaverndar, á frumvarpi til laga um úrskurðarnefnd velferðarmála sem er til umræðu hjá Velferðarnefnd. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með tölvupósti dags. 26. mars 2015.

12. mars 2015 : Morgunverðarfundur um geðheilbrigði barna

Næsti fundur Náum áttum verður miðvikudaginn 18. mars nk. á Grand Hótel að vanda. Að þessu sinni verður fjallað um geðheilbrigðismál barna, viðbrögð og úrræði sem til staðar eru auk þess sem sagt verður frá nýjum verkefnum sem reynst hafa vel fyrir börn og aðstandendur.
Síða 5 af 7

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica