Fréttir
Eldri fréttir: 2010
Fyrirsagnalisti
Réttindi nemenda í framhaldsskóla - Bréf til menntamálaráðuneytisins
Athugasemdir vegna sjónvarpsefnis
Í kjölfar ábendinga sem borist hafa embættinu vegna þátta Sveppa og Audda á Stöð 2 sendi umboðsmaður barna dagskrárstjóra Stöðvar 2 bréf þar sem umboðsmaður bendir á ábyrgð og skyldur þeirra sem sýna sjónvarpsefni sem ætlað er börnum og unglingum. Í bréfinu eru Sveppi og Auddi boðnir á fund til að ræða málin en í lok árs höfðu engin viðbrögð borist við bréfinu, sem er dags. 18. nóvember 2010.
Vinnusmiðja á Úlfljótsvatni
Dagana 16. og 17. desember 2010 hélt umboðsmaður barna vinnusmiðju fyrir unglinga á aldrinum 14-17 ára á Úlfljótsvatni. Þema vinnusmiðjunnar var vinátta, vinaleysi og samkennd.
Fjölskyldan saman um hátíðirnar
Nú þegar líða fer að jólum og áramótum vill umboðsmaður barna leggja áherslu á mikilvægi samverustunda fjölskyldna yfir hátíðarnar. Sú hátíð sem nálgast er fjölskylduhátíð og hvetur umboðsmaður því fjölskyldur til að njóta þess að vera saman.
Opið hús á morgun þriðjudaginn 21. desember
Jöfnunarstyrkur - Bréf til menntamálaráðherra
Jólakveðja
Starfsfólk embættis umboðsmanns barna óskar öllum börnum landsins og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Skrifstofan lokuð vegna vinnusmiðju
Dagana 16. til 17. desember heldur umboðsmaður barna vinnusmiðju fyrir unglinga á aldrinum 14 til 17 ára á Úlfljótsvatni. Verður skrifstofa umboðsmanns barna því lokuð föstudaginn 17. desember.
Kynning á Kompás - Handbók um mannréttindafræðslu
Umboðsmaður barna og Námsgagnastofnun hafa sent öllum grunnskólum boð um að fulltrúar þeirra haldi 50 mínútna kynningu á Kompás – Handbók í mannréttindafræðslu fyrir ungt fólk eftir óskum skóla.
- Fyrri síða
- Næsta síða