Fréttir af undirbúningi barnaþings
Fréttir af undirbúningi barnaþings sem haldið verður í Hörpu 3. og 4. mars 2021.
Fréttir af barnaþingi
Undirbúningur á fullu
Undirbúningur fyrir barnaþingið er nú á fullu. Börn úr ráðgjafarhóp umboðsmanns barna munu sjá um samfélagsmiðla embættisins meðan á barnaþingi stendur og eru nú að funda á RÚV þar þau taka við góðum punktum þaðan. Skráning fullorðna hefur gengið vel og borðstjórar munu taka þátt á lokaæfingu í kvöld. Við hlökkum mikið til að taka á móti um 120 börnum í Hörpu.
Ný dagsetning fyrir barnaþing staðfest - 09.02.2022
Ákveðið hefur verið að barnaþing sem áætlað var í lok árs 2021 verði nú haldið dagana 3. - 4. mars nk. um 170 börn voru skráð til leiks árið 2021 og hafa þau nú öll fengið tölvupóst þar sem þau eru beðin um að staðfesta skráningu/mætingu.
Barnaþingi 2021 frestað - 12.11.2021
Í ljósi hertra samkomutakmarkana sem kynntar voru í dag föstudag og vegna aukinna smita meðal barna af Covid-19 hefur umboðsmaður barna ákveðið að fresta barnaþingi sem átti að halda í Hörpu 18. og 19. nóvember, n.k. Um 170 börn á aldrinum 11-15 ára höfðu skráð sig til þingsins auk fjölda fullorðinna. Okkur þykir þetta miður en stefnum á að halda barnaþingið snemma á nýju ári og verða dagsetningar kynntar um leið og þær liggja fyrir.
Sóttvarnir á barnaþingi ræddar - 08.11.2021
Salvör Nordal umboðsmaður barna fundaði í dag með Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, staðgengli sóttvarnalæknis um sóttvarnaráðstafanir á barnaþingi sem fram fer í Hörpu í Reykjavík dagana 17. og 18. nóvember nk. Skipulag þingsins mun taka mið af gildandi sóttvarnareglum og áhersla verður lögð á tryggja öryggi barnaþingfulltrúa og annarra gesta. Góðar aðstæður í húsnæði Hörpu gera embættinu samt sem áður kleift að halda glæsilegan viðburð þar sem virk þátttaka barna er í fyrirrúmi.
Barnaþingmenn velja atriði á barnaþing - 14.10.2021
Barnaþingmenn tilnefndu allnokkra aðila til að vera með atriði á hátíðardagskrá barnaþings sem fer fram í Hörpu í nóvember. Alls tilnefndu þingmennirnir 17 atriði sem kosið var um þeirra á meðal. Úrslitin verða upplýst þegar nær dregur barnaþingi.
Fundur með þátttakendum og forsjáraðilum - 07.10.2021
Umboðsmaður barna átti fund með yfir 100 börnum á Zoom þar sem farið var yfir helstu atriði tengt þátttöku þeirra á barnaþingi.
Fleiri fréttir
Undirbúningur fyrir barnaþing - 28.08.2021Barnaþing haldið í annað sinn - 08.05.2021