Umhverfis- og loftslagsstefna
Framtíðarsýn
Embætti umboðsmanns barna ætlar að vera til fyrirmyndar í umhverfis- og loftslagsmálum og halda neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi stofnunarinnar í lágmarki. Embættið leggur sitt af mörkum til að skuldbindingum íslenskra stjórnvalda gagnvart Parísarsamkomulaginu sé náð og tekur þannig virkan þátt í baráttunni við loftslagsbreytingar. Embættið fylgir lögum og reglum er lúta að fyrrgreindum málum og tekur umhverfis- og loftlagsstefnan mið af stefnu og aðgerðaráætlun stjórnvalda í þeim efnum.
Markmið
Markmið umhverfis- og loftlagsstefnu umboðsmanns barna er að stuðla að því að neikvæð umhverfisáhrif af starfseminni verði í lágmarki.
- Umboðsmaður barna (UB) ætlar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á stöðugildi um 40% miðað við árið 2019.
- UB ætlar að draga úr losun í rekstri en einnig kolefnisjafna alla eftirstandandi losun með kaupum á vottuðum kolefniseiningum frá og með árinu 2021.
- UB stefnir á að uppfylla skilyrði allra 5 skrefa verkefnisins Grænna skrefa í ríkisrekstri um mitt ár 2022.
- UB skipuleggur að lágmarki 2 fræðslufundi á ári fyrir starfsfólk embættisins um umhverfismál.
Umhverfis- og loftlagsstefna UB tekur mið af:
- Leiðbeiningum Umhverfisstofnunar um loftlagsstefnur opinberra aðila.
- Skuldbindingum íslenskra stjórnvalda gagnvart Parísarsamkomulaginu.
- Aðgerðaráætlun íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum.
- Verkefninu Grænum skrefum
Umfang
Umhverfis- og loftslagsstefna UB fjallar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda samkvæmt leiðbeiningum um loftslagsstefnur opinberra aðila en jafnframt um umhverfisáhrif embættisins í víðara samhengi. Haldið er grænt bókhald.
Stefnan tekur til eftirfarandi umhverfisþátta sem unnt er að fylgjast með og mæla hverju sinni:
Samgöngur - losun GHL vegna akstur á bílaleigu og leigubílum
- losun GHL vegna flugferða
- Fjöldi samgöngusamninga sem stofnunin gerir við starfsmenn.
Orkunotkun - rafmagns og heitavatnsnotkun á starfsstöð.
Úrgangur - Losun GHL vegna lífræns úrgangs sem fellur til á starfsstöð
- Losun GHL vegna blandaðs úrgangs sem fellur til á starfsstöð
- Heildarmagn úrgangs sem fellur til á starfsstöð
- Magn útprentaðs pappírs á starfsstöð
- Endurvinnsluhlutfall á starfsstöð
Innkaup - Hlutfall umhverfisvottaðs skrifstofupappírs sem embættið kaupir
- Hlutfall umhverfisvottaðrar prentþjónustu sem embættið kaupir
- Magn ræsti og hreinsiefna sem embættið kaupir og notað er á starfsstöð
- Hlutfall umhverfisvottaðra ræstiþjónustu sem stofnunin kaupir fyrir starfsstöð.
Gildissvið
Umhverfisstefnan og framkvæmd hennar er liður í daglegu starfi UB. Hún tekur til umhverfisþátta af rekstri umboðsmanns barna og varðar alla starfsmenn stofnunarinnar.
Eftirfylgni
Umboðsmaður barna heldur Grænt bókhald sem er tekið saman og skilað í Gagnagátt Umhverfisstofnunar fyrir 1. apríl ár hvert.
Loftslagsstefna umboðsmanns barna er rýnd á hverju ári af starfsfólki embættisins og yfirmarkmið og undirmarkmið uppfærð með tilliti til þróunar í losun GHL á milli ára. Stefnan er samþykkt á starfsmannafundi og upplýsingum um árangur aðgerða er miðlað á heimasíðu embættisins.