Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna
Samkvæmt lögum um umboðsmann barna ber umboðsmanni að eiga virkt samráð við börn. Í því felst meðal annars að hafa hóp barna sér til ráðgjafar um þau málefni sem snúa að börnum í íslensku samfélagi.
Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna var stofnaður árið 2009 og hefur fjöldi barna tekið þátt í starfinu og þannig haft áhrif á réttindi barna í íslensku samfélagi. Þann 8. janúar 2019 var starf ráðgjafarhóps umboðsmanns barna bundið í lög sbr. lög nr. 148/2018 .
Embættið hyggst efla ráðgjafarhópinn og leitast við að styrkja umgjörð hans. Einnig á að tryggja að í hópnum starfi fjölbreyttur hópur barna af öllu landinu.
Hlutverk ráðgjafarhópsins er meðal annars að:
- veita umboðsmanni barna ráðgjöf um réttindi og hagsmuni barna og ungmenna
- fást við einstaka verkefni í samstarfi við starfsmenn embættisins
- vinna að fjölbreyttum verkefnum sem stuðla að vitundarvakningu barna og ungmenna um réttindi þeirra
- sækja fundi, ráðstefnur og aðra viðburði þar sem fjallað er um málefni barna.