Eftirfylgni og upplýsingagjöf til þeirra sem aðkomu höfðu að málinu
Eftirfylgni og upplýsingagjöf til barna
Það skiptir máli að þau börn sem hafa tekið þátt í ferlinu og tjáð skoðanir sínar og sem fyrirsjáanlegt er að málið muni hafa áhrif á, fái upplýsingar um það hvernig matið á því sem börnum er fyrir bestu fór fram og hver endanleg niðurstaða var. Huga þarf sérstaklega að því að gera upplýsingarnar aðgengilegar og barnvænar þannig að börnin skilji á hverju ákvörðunin byggir og hverjar geta orðið afleiðingarnar af henni fyrir þau.
Hér má lesa meira um það hverju ber að huga að þegar verið er að aðlaga upplýsingar að börnum.
Gátlisti: Mat
- Hefur það verið skráð í gögn
málsins hvernig á að tryggja eftirfylgni og upplýsingagjöf til barna?
Fylgja þarf eftir áhrifum ákvörðunarinnar
Til þess að tryggja að ákvörðunin hafi tilætluð áhrif þarf að fylgja henni eftir og leggja mat á árangurinn. Hugtakið „það sem börnum er fyrir bestu“ er í stöðugri þróun og tekur breytingum í takt við samfélagslegar breytingar og aukna þekkingu á hagsmunum, þörfum og réttindum barna. Það þýðir að ákvörðun sem grundvallast á mati á því sem börnum er fyrir bestu þarf því að fá rýni og jafnvel endurskoðun eftir atvikum.
Gátlisti
Hafa sjónarmið barnanna sem hafa tekið þátt í ferlinu verið skráð í gögn málsins?
Hefur verið sett áætlun um það hvernig fylgja á málinu eftir?
Þegar málið snertir einstök börn eða afmarkaða hópa barna
Seinni hluti - þegar ákvarðanir eða aðgerðir varða einstök börn eða afmarkaða hópa barna.