Upplýsingar um bið barna eftir þjónustu
Umboðsmaður barna hefur staðið fyrir reglulegri upplýsingaöflun um þann fjölda barna sem bíður eftir þjónustu hjá tilteknum aðilum með það að markmiði að varpa ljósi á stöðuna hverju sinni.
Samstarfsaðilar verkefnisins eru Barna- og fjölskyldustofa, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Geðheilsumiðstöð barna, Ráðgjafar- og greiningarstöð, Barna- og unglingageðdeild LSH, Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu og Heilsuskóli Barnaspítala Hringsins.
Umboðsmaður barna starfar samkvæmt lögum um umboðsmann barna nr. 83/1994 og hefur það hlutverk að standa vörð um hagsmuni, þarfir og réttindi barna. Liður í því er að afla og miðla gögnum og upplýsingum um aðstæður barna og stöðu tiltekinna hópa barna hverju sinni í samvinnu við ýmsa aðila. Hluti af þeirri vinnu er að gera aðgengilegar á einum stað upplýsingar um þann fjölda barna sem bíður eftir tiltekinni þjónustu hverju sinni. Upplýsingarnar eru uppfærðar á sex mánaða fresti til að fylgjast með þróuninni.
Upplýsingum var fyrst safnað í árslok 2021 og eru þær nú birtar í þriðja sinn.
Það er von umboðsmanns barna að birting upplýsinganna muni varpa ljósi á raunverulega stöðu barna í íslensku samfélagi og verði stjórnvöldum hvatning til aðgerða og úrbóta. Söfnun og birting upplýsinganna er jafnframt liður í því hlutverki umboðsmanns barna að stuðla að því að Barnasáttmálinn sé virtur og innleiddur að fullu.
Nýjar upplýsingar um bið barna eftir þjónustu
Helstu breytingar og niðurstöður
Þeim börnum sem bíða eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna hefur fjölgað töluvert frá því umboðsmaður barna kallaði fyrst eftir upplýsingum um bið barna eftir þjónustu í desember 2021. Þá biðu 738 börn en þau voru 830 í september 2022. Í febrúar 2023 voru þetta 1157 börn sem öll höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Það eru því 419 fleiri börn sem bíða nú eftir greiningu borið saman við desember 2021.
Samtals biðu 420 börn eftir þverfaglegri greiningu hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð í febrúar 2023. Af þeim eru 283 börn á aldrinum 0-6 ára og 137 börn 6-18 ára. Þá hafa 326 börn beðið lengur en þrjá mánuði en meðalbiðtími eru 15-16,8 mánuðir og er það sambærilegur tími og í ágúst 2022.
Fleiri mál, þar sem börn eiga í hlut, bíða sáttameðferðar hjá sýslumönnum og voru þau 58 í febrúar 2023 en 6 í september 2022. Jafnframt bíða 547 börn eftir að komast til sálfræðings hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og 353 börn hafa beðið lengur en 3 mánuði. Það bíða 104 börn eftir þjónustu Heilsuskólans en meðalbiðtími þar eru 17 mánuðir og hafa 80 börn beðið lengur en 3 mánuði. Þegar bornar eru saman tölur frá síðustu upplýsingaöflun má sjá að meðalbiðtími eftir þjónustu hjá göngudeild, transteymi og átröskunarteymi Barna og unglingageðdeildar LSH hefur styst, 116 börn biðu eftir þjónustu BUGL í febrúar 2023.
Að mati umboðsmanns barna er áríðandi að hægt verði að nálgast upplýsingar um þann fjölda barna sem bíður eftir þjónustu talmeinafræðinga með reglubundnum hætti. Hingað til hefur það ekki verið hægt þar sem biðlistar og kerfi eru ekki samræmd og hvergi er haldið utan um þessar upplýsingar. Sjúkratryggingar Íslands gerðu úttekt á stöðu barna sem bíða eftir þjónustu talmeinafræðinga í desember 2021 að beiðni heilbrigðisráðuneytisins. Þessar upplýsingar voru birtar með göngum um bið eftir þjónustu síðasta haust. Þar kemur fram að 3.701 barn hafi verið skráð á biðlista hjá talmeinafræðingum í desember 2021. Þar af voru 947 börn skráð á fleiri en einum stað. Flest börn á biðlistum höfðu beðið í 0 – 6 mánuði (eða um 30%) en um 11% höfðu beðið lengur en 2 ár. Engar haldbærar upplýsingar liggja fyrir um hvernig þróunin hefur verið frá árinu 2021.
Nýjar upplýsingar og samanburður
Barnahús
Í febrúar 2023 biðu 10 börn eftir meðferð í Barnahúsi og er meðalbiðtími 89-95 dagar. Þá hafa 7 börn beðið lengur en þrjá mánuði. Staðan hefur batnað nokkuð frá því í ágúst 2022 en þá beið 31 barn og höfðu 11 beðið lengur en þrjá mánuði.
Barna- og fjölskyldustofa (áður Barnaverndarstofa)
Í febrúar 2023 biðu 18 börn eftir þjónustu MST teymis, var meðalbiðtími 39 dagar og höfðu tvö börn beðið lengur en 3 mánuði. Miðað er við þann tíma er umsókn berst Barna- og fjölskyldustofu. Síðastliðið ár hefur meðalbiðtími verið 77 dagar (124 mál og 26 börn biðu lengur en 3 mánuði eftir þjónustu).
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Árið 2022 voru 78 börn brotaþolar í kynferðisbrotamáli og 116 í ofbeldismáli. Þá voru 20 börn sem höfðu stöðu sakbornings í kynferðisbrotamáli árið 2022 og 123 í ofbeldisbrotamáli. Þetta er sambærilegur fjöldi og árið 2021 að því undanskildu að færri börn höfðu stöðu brotaþola en þau voru 161 árið 2021. Hér þarf að gera fyrirvara þar sem um að ræða bráðabirgðatölur þar sem tilkynningar um brot geta átt sér stað aftur í tímann og því geta eldri tölur tekið breytingum.
Ráðgjafar- og greiningarstöð
283 börn á aldrinum 0-6 ára biðu eftir þverfaglegri greiningu hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð í febrúar 2023, meðalbiðtími var 16,8 mánuðir og höfðu 242 börn beðið lengur en þrjá mánuði. Þá biðu 137 börn á aldrinum 6-18 ára eftir þverfaglegri greiningu og er meðalbiðtími í þeim aldurshópi 15-16 mánuðir og hafa 84 börn beðið lengur en þrjá mánuði.
Í september 2022 voru 257 börn á biðlista hjá sviði yngri barna og 136 börn biðu eftir þverfaglegri greiningu hjá sviði eldri barna.
(Hlutverk Ráðgjafar- og greiningarstöðvar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra.)
Barna- og unglingageðdeild LSH (BUGL)
Í febrúar 2023 biðu 105 börn eftir þjónustu göngudeildar BUGL (teymi A og B), af þeim tilheyra transteyminu 50 börn. Meðalbiðtími var 6,6 mánuðir og höfðu 76 börn beðið lengur en 3 mánuði. Þar að auki biðu 9 börn eftir átröskunarmeðferð göngudeildar og hefur ekkert þeirra beðið lengur en 3 mánuði.
(Göngudeild barna- og unglingageðdeildar veitir börnum og unglingum að 18 ára aldri þjónustu vegna geð- og þroskaraskana)
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Í febrúar 2023 biðu 175 mál meðferðar Sýslumannsins á Höfuðborgarsvæðinu á grundvelli barnalaga og hjúskaparlaga og hefur þeim fækkað frá því í september 2022 en þá biðu 244 mál meðferðar. Meðalbiðtími þessara mála hefur hins vegar lengst og er nú 3,5 mánuðir en var 0,5 mánuður í september 2022. Þá hefur fjöldi mála þar sem börn eiga í hlut og beðið er sáttameðferðar hjá sýslumönnum á öllu landinu aukist umtalsvert og bíða nú 58 mál en það voru aðeins 6 mál sem biðu eftir sáttameðferð í september 2022.
(Á fjölskyldusviði embættisins eru meðal annars meðhöndluð erindi foreldra er varða framfærslu barna, umgengni, sambúðarslit, skilnað, skipta búsetu, forsjá, lögheimili eða utanlandsferð. Við meðferð þessara mála kann að reyna á sáttameðferð, ráðgjöf og fleiri úrræði samkvæmt barnalögum. Þá eru meðhöndluð þar mál á grundvelli ættleiðingarlaga og lögræðislaga. Börnin sjálf eru ekki aðilar þessara mála, í merkingu stjórnsýslulaga, en málin varða hagsmuni þeirra.)
Geðheilsumiðstöð barna (áður Þroska- og hegðunarstöð)
Í febrúar 2023 biðu 1157 börn eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna og höfðu þau öll beðið lengur en þrjá mánuði. Meðalbiðtími var 12-14 mánuðir og bið eftir einhverfugreiningu 22 -24 mánuðir að meðaltali.
Þeim börnum sem bíða eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna hefur fjölgað töluvert frá því umboðsmaður barna kallaði fyrst eftir upplýsingum um bið barna eftir þjónustu í desember 2021. Þá biðu 738 börn en þau voru 830 í september 2022. Það eru því 419 fleiri börn sem bíða eftir greiningu í febrúar 2023 borið saman við desember 2021. Meðalbiðtími hefur haldist sá sami eða 12-14 mánuðir og 22-24 mánuðir eftir einhverfugreiningu.
(Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir börn að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga.)
Heilsuskólinn
Það bíða 104 börn eftir þjónustu Heilsuskólans en meðalbiðtími eru 17 mánuðir. Þá hafa 80 börn beðið lengur en 3 mánuði.
Lítil sem engin breyting hefur orðið frá því tölurnar voru birtar seinast. Í október 2022 biðu 110 börn og var meðalbiðtími 17 mánuðir en 100 börn höfðu þá beðið lengur en þrjá mánuði.
(Heilsuskóli Barnaspítalans þjónar öllu landinu og aðstoðar börn og fjölskyldur þeirra sem eru 2,5 staðalfrávikum fyrir ofan meðalkúrfu í BMI eða börn sem hafa verið með mikla þyngdaraukningu á stuttum tíma. Í Heilsuskólanum eru fjölskyldum kenndar aðferðir til að takast á við þyngdarstjórnun og viðhalda breytingum ásamt því að bæta lífsgæði til lengri tíma. Leitast er við að hvetja börnin áfram með styðjandi hætti ásamt því að veita ráðgjöf um mataræði og hreyfingu.)
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Það bíða 547 börn eftir þjónustu sálfræðings hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Meðalbiðtími eru 206 dagar og 353 börn hafa beðið lengur en 3 mánuði eftir því að komast að hjá sálfræðingi.
Börnum sem bíða eftir þjónustu sálfræðings hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur fækkað lítillega frá því í október 2022. Þá biðu 618 börn eftir því að komast að hjá sálfræðingi og var meðalbiðtími 168 dagar.
(Sálfræðingar á heilsugæslustöðvum veita börnum meðferð vegna hegðunar- og tilfinningavanda ásamt því að veita foreldrum þeirra ráðgjöf. Læknir á heilsugæslustöð þarf að senda tilvísun til sálfræðings til nánara mats ásamt því að upplýsa um áætlaðan biðtíma.)
Talmeinafræðingar
Sjúkratryggingar Íslands gerðu úttekt á stöðu barna sem bíða eftir þjónustu talmeinafræðinga í desember 2021. Var það gert að beiðni heilbrigðisráðuneytisins. Sjúkratryggingar fengu þá innsendar upplýsingar frá öllum talmeinafræðingum á landinu til að meta stöðuna í desember 2021 og eru tölur um stöðu barna sem bíða eftir þjónustu talmeinafræðinga frá þeim tíma. Þar kemur fram að 3.701 barn hafi verið skráð á biðlista hjá talmeinafræðingum í desember 2021. Þar af voru 947 börn skráð á fleiri en einum stað. Flest börn á biðlistum höfðu beðið í 0 – 6 mánuði (eða um 30%) en um 11% höfðu beðið lengur en 2 ár.