8. júlí 2015

Tilmæli Evrópuráðsins frá 2011 um réttindi barna og barnvæna félagsþjónustu

Á vef velferðarráðuneytisins hefur nú verið birt íslensk þýðing af tilmælum Ráðherranefndar Evrópuráðsins um réttindi barna og barnvæna félagsþjónustu við börn og fjölskyldur. Tilmælin taka til réttinda barna við skipulagningu, veitingu og mat á félagsþjónustu sem sníða verður að þörfum barna og fjölskyldna þeirra.

Á vef velferðarráðuneytisins hefur nú verið birt íslensk þýðing af tilmælum Ráðherranefndar Evrópuráðsins um réttindi barna og barnvæna félagsþjónustu við börn og fjölskyldur.

Tilmælin taka til réttinda barna við skipulagningu, veitingu og mat á félagsþjónustu sem sníða verður að þörfum barna og fjölskyldna þeirra. Hún byggist á meginreglunni um það sem barni er fyrir bestu sem og réttindum þess til umönnunar, þjónustu, þátttöku og verndar.

Tilmælin eiga við um öll börn, án mismununar, óháð aðstæðum þeirra eða stöðu og án tillits til ástæðu þess að þau þurfa á félagsþjónustu að halda. Þá tekur hún einnig til allra ákvarðana félagsþjónustu sem með beinum eða óbeinum hætti geta haft áhrif á líf barna.

Tilmælin miða að því að tryggja að félagsþjónusta sé veitt að undangengnu einstaklingsbundnu mati á þörfum og aðstæðum barnsins og að hún taki mið af sjónarmiðum þess, með tilliti til aldurs, þroska og getu.

Smellið hér til að skoða tilmæli Ráðherranefndar Evrópuráðsins um réttindi barna og barnvæna félagsþjónustu við börn og fjölskyldur (PDF).

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica