Ráðherra fengu skýrslu barnaþings afhenta
Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna ásamt Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, afhentu ráðherrum skýrslu barnaþings á föstudaginn sl.
Í skýrslunni eru dregnar fram helstu niðurstöður þingsins sem haldið var í Hörpu í nóvember 2003.
Meðal þeirra mála sem fjallað er um í skýrslunni og börnin ræddu sérstaklega um við ráðherra eru almenningssamgöngur, aukið samráð við börn, andleg heilsa og mikilvægi fræðslu um jaðarhópa í skólum. Einnig ræddu börnin og ráðherrarnir um vaxandi ofbeldi meðal barna og hvernig hægt sé að bregðast við þessari þróun.
Síðasta barnaþing var það þriðja í röðinni og alls tóku um 140 börn þátt. Þingið er haldið annað hvert ár en markmið þess er að efla börn til þátttöku í lýðræðislegri umræðu um málefni sem snerta þau og veita sjónarmiðum þeirra farveg.
Í framhaldi af barnaþinginu var unnið verklag um meðferð tillagnanna innan stjórnarráðsins. Verklagið á að tryggja að stjórnarráðið taki tillögur barnaþings til meðferðar og að hvert ráðuneyti skili skýrslu um hvernig unnið hafi verið með þær tillögur sem heyri undir viðkomandi ráðuneyti milli þinga. Þetta er mikilvægur áfangi til þess að tryggja að tillögur barna fái vandaða meðferð hjá stjórnvöldum og séu teknar alvarlega.
Skýrsla með helstu niðurstöðum barnaþings sem haldið var í Hörpu 17. nóvember 2023.