Notkun farsíma í skólum
Í október 2023 framkvæmdi umboðsmaður barna könnun meðal allra grunnskóla á landinu þar sem spurt var um reglur varðandi farsíma í skólum. Niðurstöður könnunarinnar voru birtar í skýrslu um stöðu barna sem var lögð fram fyrir barnaþing 2023.
Langflestir skólar hafa sett reglur um símanotkun nemenda
Af þeim 129 skólum sem svöruðu könnuninni voru reglur um símanotkun í 126 skólum og nemendur höfðu komið að gerð reglnanna í 72 (59%) skólum. Spurt var að því hvort símar væru leyfðir í skólanum og svöruðu 70 (54%) að svo væri. Það er algengara að 8. – 10. bekkur hafi leyfi til þess að nota síma á skólatíma og var það heimilt í 65 skólum fyrir 8. bekk og 66 skólum fyrir 9. og 10. bekk. Í aðeins 22 skólum eru símar leyfðir fyrir nemendur í 1. – 7. bekk.
Í lok könnunarinnar gafst svarendum kostur á að koma öðrum atriðum á framfæri og nýttu margir þann kost til þess að gera betur grein fyrir þeim reglum sem gilda í viðkomandi skóla um notkun farsíma. Af þeim svörum að marka er algengt að símanotkun sé háð takmörkunum og leyfð á ákveðnum tímum og á skilgreindum svæðum. Almennt er símanotkun ekki leyfð í yngri bekkjum en á því eru undantekningar. Nemendur á unglingastigi hafa almennt rýmri heimildir til þess að nota síma í skólanum. Símabann er í nokkrum skólum og töldu svarendur að almenn ánægja væri með það innan skólans. Þá komu fram dæmi um það að í skólum sé einn dagur í viku símalaus eða jafnvel einn mánuður. Í einu svari kom hins vegar fram að það sé mikilvægt að kenna nemendum að umgangast tæki, boð og bönn virki ekki. Í öðru svari kom fram að markmið með notkun síma í skólanum sé að nemendur fái kennslu um notkun tækjanna og læri að nýta sér tæknina til gagns.
Algengt að nemendum sé heimilt að koma með farsíma
Það virðist vera algengt að nemendum sé heimilt að koma með farsíma í skólann en að hann eigi að vera í tösku nemanda og slökkt á honum á skólatíma. Í nokkrum svörum voru nefndar ástæður þess að nemendum sé heimilt að taka síma með sér í skólann og kom þar m.a. fram að nemendur séu í sumum tilfellum með strætókort og greiðslukort í símunum og þá liggi ákveðin öryggissjónarmið þar að baki fyrir nemendur á leið í og úr skóla.
Reglur settar í samráði við nemendur
Nokkur samhljómur var í svörum um mikilvægi þess að reglur um símanotkun á skólatíma séu samdar í samráði við starfsfólk, nemendur og foreldra. Í einu svari kom fram að reglur um símanotkun væru einstaklingsmiðaðar og unnar í samráði við fjölskyldur og nemendur. Dæmi eru um að nemendur í 7. - 10. bekk og foreldrar þeirra skrifi undir símasamning til að fá leyfi til þess að nota símann í skólanum.
Niðurstöður könnunarinnar bera það með sér að nær allir grunnskólar hafi sett reglur um notkun farsíma og er það von umboðsmanns barna að nemendur taki ávallt þátt í því að endurskoða og semja slíkar reglur í samræmi við 12. gr. Barnasáttmálans. Enda er það réttur barna að vera höfð með í ráðum og skylda stjórnvalda að veita þeim raunveruleg tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif. Nemendaráð geta gegnt lykilhlutverki í því að upplýsa nemendur og hvetja þá til þess að taka þátt í samráði og samtali við stjórnendur og starfsfólk skóla. Ber til þess að líta að skólar gegna lykilhlutverki í því að efla börn til lýðræðislegrar þátttöku.
Mynd 1: Eru símar leyfðir í þínum skóla? Nei sögðu 59 eða 46% svarenda, já sögðu 70 eða 54% svarenda.