Mikið um að vera á öskudag
Í gær, öskudag, fékk umboðsmaður barna margar góðar heimsóknir frá krökkum á ýmsum aldri. Hér eru myndir af hluta af börnum og furðuverum sem heimsóttu skrifstofuna á Laugaveginum.
Í gær, öskudag, fékk umboðsmaður barna margar góðar heimsóknir frá krökkum á ýmsum aldri. Söngatriðin voru fjölbreytt og gervin sömuleiðis. Starfsfólki embættisins taldist til að um 250 krakkar hefðu heimsótt skrifstofuna sem er á Laugavegi 13.
Umboðsmaður þakkar krökkunum fyrir þessar skemmtilegu uppákomur. Hér eru myndir af hluta af börnum og furðuverum sem heimsóttu skrifstofuna.