27. apríl 2016

Lög um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir nr. 25/1975

Í frétt á vef velferðarráðuneytisins, dags. 7. apríl 2016, er óskað eftir umsögnum og tillögum að breytingum á gildandi lögum um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir nr. 25-1975. Umboðsmaður barna ákvað að senda inn eina ábendingu varðandi sjálfákvörðunarrétt stúlkna með tölvupósti dags. 27. apríl 2016.

Umsögn umboðsmanns barna

Reykjavík, 27. apríl 2016
UB: 1604/4.1.2

Efni: Umsögn um lög nr. 25/1975

Vísað er í frétt á heimasíðu velferðarráðuneytisins, dags. 7. apríl sl., þar sem óskað er eftir umsögnum vegna heildarendurskoðunar laga nr. 25/1975.

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á því að samkvæmt 3. tölul. 2. mgr. 13. gr. núgildandi laga er gert ráð fyrir því að foreldrar skuli taka þátt í umsókn um fóstureyðingu með stúlkum undir 16 ára aldri, nema sérstakar ástæður mæli gegn því.  Hægt er að túlka umrætt ákvæði þannig að foreldrar þurfi almennt að samþykkja fóstureyðingar hjá stúlkum undir 16 ára aldri. Börn eiga sjálfstæðan rétt til friðhelgi einkalífs og eiga að fá stigvaxandi rétt til þess að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf og líkama. Það samræmist illa þessum réttindum að foreldrar geti komið í veg fyrir fóstureyðingu hjá ungri stúlku og þannig  ákveðið fyrir hennar hönd að hún eigi að ganga með og eignast barn. Telur umboðsmaður barna því rétt að breyta umræddu ákvæði, þannig að tekið sé skýrt fram að stúlkur á öllum aldri eigi sjálfsákvörðunarrétt um það hvort þær kjósi að fara í fóstureyðingu eða ekki.

Virðingarfyllst,

Margrét María Sigurðardóttir,
umboðsmaður barna

Hafðu samband

Póstlisti

Þetta vefsvæði byggir á Eplica