3. apríl 2009

Leiðbeiningarreglur um aukna neytendavernd barna

Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda hafa gefið út ítarlegar leiðbeiningarreglur um aukna neytendavernd barna þar sem leitast er við að finna gott jafnvægi varðandi mörk við markaðssókn fyrirtækja gagnvart börnum og unglingum.

Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda hafa  gefið út ítarlegar leiðbeiningarreglur um aukna neytendavernd barna þar sem leitast er við að finna gott jafnvægi varðandi mörk við markaðssókn fyrirtækja gagnvart börnum og unglingum.

Eftir þriggja og hálfs árs samstarf talsmanns neytenda og umboðsmanns barna og samráð embættanna við um 100 aðila undanfarið hálft annað ár hafa embættin nú gefið formlega út leiðbeinandi reglur til fyrirtækja og annarra hagsmunaaðila um hvar mörkin liggja gagnvart markaðssókn sem beinist að börnum. Í samráði við Neytendasamtökin var ákveðið að leiðbeiningarnar tækju gildi á alþjóðadegi neytendaréttar 15. mars 2009. Þannig gefst fyrirtækjum, fjölmiðlum og öðrum rúmur tími til þess að undirbúa sig áður en farið verður að fylgja leiðbeiningunum eftir af  hálfu talsmanns neytenda og umboðsmanns barna og annarra.

Auk Neytendasamtakanna hefur verið haft ítrekað samráð á alls um 80 fundum og bréfaskiptum við lykilaðila í fræðasamfélagi. Má þar nefna meðal annars opinbera aðila, hagsmunasamtök launafólk, framhaldsskólanema og skólastjórnendur: Jafnframt hefur verið leitað samráðs við önnur almannasamtök, fyrirtæki og ekki síst hagsmunasamtök atvinnurekenda en kjarninn í hugmyndafræðinni er að sem flestir eigi þess kost að hafa áhrif á niðurstöðuna og auka þar með líkur á því að leiðbeiningunum verði fylgt. Einnig var með aðstoð stjórnenda og kennara í Víkurskóla í Reykjavík leitað eftir skoðunum hóps skólabarna.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica