Heimsókn ungmenna
Í gær komu ungmenni úr unglingasmiðjunni Stíg í heimsókn til umboðsmanns barna. Krakkarnir fengu kynningu á embættinu og störfum umboðsmanns barna og hvaða hlutverki hún gegnir fyrir börn.
Í gær komu ungmenni úr unglingasmiðjunni Stíg í heimsókn til umboðsmanns barna. Krakkarnir fengu kynningu á embættinu og störfum umboðsmanns barna og hvaða hlutverki hún gegnir fyrir börn. Þá var heimasíðan kynnt sem og skólaverkefnið „Hvernig er að vera barn á Íslandi“.
Góðar ábendingar varðandi heimasíðuna komu fram auk áhugaverða spurninga. Umboðsmaður barna þakkar ungmennum úr unglingasmiðjunni Stíg kærlega fyrir ánægjulega heimsókn.