7. mars 2012

Frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof, 109. mál.

Velferðarnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof, 109. mál. Umsögn sína veitt umboðsmaður barna með bréfi dags. 29. febrúar 2012.

Velferðarnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof, 109. mál. Umsögn sína veitt umboðsmaður barna með bréfi dags. 29. febrúar 2012.

Skoða frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof, 109. mál.
Skoða feril málsins.

Umsögn umboðsmanns barna

Nefndasvið Alþingis
Velferðarnefnd
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík


Reykjavík, 29. febrúar 2012
UB: 1202/4.1.1

Efni: Frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof, 109. mál.

Vísað er til tölvupósts frá nefndasviði Alþingis, dags. 15. febrúar, þar sem óskað er eftir umsögn umboðsmanns barna um ofangreint frumvarp. Umboðsmaður barna þakkar fyrir það tækifæri að koma með athugasemdir.

Í frumvarpinu er lagt til að einstæðar maður sem eignast barn sem getið er við tæknifrjóvgun og einstæðir foreldrar sem hafa ættleitt barn eða tekið barn í varanlegt fóstur skuli öðlast rétt til níu mánaða fæðingarorlofs. Slík breyting myndi hafa það í för með sér að börn þessara foreldra gætu notið umönnunar foreldra sinna þremur mánuðum lengur en gert er ráð fyrir í núgildandi lögum.

Umboðsmaður barna telur nauðsynlegt að lög um fæðingar- og foreldraorlof endurspegli þann veruleika sem við búum við og viðurkenni mismunandi fjölskyldugerðir. Mikilvægt er að börnum sem eiga aðeins eitt foreldri sé tryggður sami réttur til að njóta umönnunar foreldris eftir fæðingu og öðrum börnum, enda ber aldrei að mismuna börnum eftir stöðu foreldra, sbr. 2. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrár Íslands. Umboðsmaður barna fagnar því ofangreindu frumvarpi.

Virðingarfyllst,
___________________________________
Margrét María Sigurðardóttir,
umboðsmaður barna


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica