Einmanaleiki - morgunverðarfundur Náum áttum
Næsti morgunverðarfundur hópsins Náum áttum verður miðvikudaginn 8. mars næstkomandi. Að þessu sinni er umræðuefnið "Einmanaleiki og sjálfskaðandi hegðun ungs fólks".
Á fundinum verða með erindi þau:
Ingibjörg Eva Þórisdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu og doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík með erindið "Andleg líðan ungmenna á framhaldsskólaaldri - staða og þróun yfir tíma.
Bóas Valdórsson, sálfræðingur með erindið "Sálfræðiþjónusta í framhaldsskólum".
Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis með erindið "Hvernig líður ungum Íslendingum? - staðan eftir 18 ára aldur".
Morgunverðarfundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en með morgunverði kostar þátttakan 2.400 kr. Fundarstjóri verður Bryndís Jónsdóttir verkefnastjóri hjá Heimili og skóla. Náum áttum er samstarfsverkefni samtaka og stofnana í forvörnum.