3. desember 2009

Bók fyrir skilnaðarbörn

Umboðsmaður barna vill benda á nýlega bók sem fjallar um skilnað foreldra og áhrif hans á barn þeirra. Bókin er ætluð sem stuðningsrit fyrir skilnaðarbörn.

Umboðsmaður barna vill benda á nýlega bók sem fjallar um skilnað foreldra og áhrif hans á barn þeirra. Bókin er ætluð sem stuðningsrit fyrir skilnaðarbörn. Bókin heitir Blómlegt fjölskyldulíf og er eftir Huginn Þór Grétarsson.

Á vefsíðu Bókatíðinda segir:

Fjóla og fjölskyldan hennar lifa hamingjusömu lífi í blómabeði fyrir utan Arnargötu 2b. Þau súpa tært rigningarvatn, dansa í vindinum og flatmaga í sólbaði. Lífið virðist eintóm paradís.
En hvað gerist þegar Fífill pabbi og mamma Rós ákveða að slíta blómabandinu?
Bókin hjálpar Fjólu að skilja af hverju foreldrar hennar geta ekki lengur deilt blómabeði og að þrátt fyrir skilnað og flutninga elski þau hana jafnt sem áður af öllu hjarta.

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica