Bið barna eftir þjónustu, nýjar tölur
Umboðsmaður barna birtir nú í sjöunda sinn upplýsingar um bið barna eftir þjónustu
Löng bið eftir þjónustu við börn hefur verið viðvarandi vandamál til margra ára. Með það að markmiði að varpa ljósi á raunverulega stöðu barna hefur umboðsmaður barna, frá því í desember 2021, staðið fyrir reglulegri upplýsingaöflun um þann fjölda barna sem bíður eftir þjónustu hjá tilteknum aðilum.
Samstarfsaðilar verkefnisins eru Barna- og fjölskyldustofa, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Geðheilsumiðstöð barna, Ráðgjafar- og greiningarstöð, Barna- og unglingageðdeild LSH, Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heilsuskóli Barnaspítalans og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.
Umboðsmaður barna starfar samkvæmt lögum um umboðsmann barna nr. 83/1994 og hefur það hlutverk að standa vörð um hagsmuni, þarfir og réttindi barna. Liður í því er að afla og miðla gögnum og upplýsingum um aðstæður barna og stöðu tiltekinna hópa barna hverju sinni í samvinnu við ýmsa aðila. Hluti af þeirri vinnu er að gera aðgengilegar á einum stað upplýsingar um þann fjölda barna sem bíður eftir tiltekinni þjónustu hverju sinni. Upplýsingarnar eru uppfærðar á sex mánaða fresti til að fylgjast með þróuninni.
Dæmi um niðurstöðurfrá því í lok janúar 2025:
- Hjá Geðheilsumiðstöð barna biðu 2093 börn og 1808 höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Börnum sem bíða eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna hefur fjölgað töluvert frá því umboðsmaður barna kallaði fyrst eftir upplýsingum um bið barna eftir þjónustu í desember 2021 en þá biðu 738 börn.
- Hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð biðu 644 börn eftir greiningu og 580 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Þeim börnum sem bíða eftir þjónustu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar hefur fjölgað frá því í desember 2021. Þá biðu samtals 326 börn og af þeim höfðu 320 beðið í þrjá mánuði eða lengur.
- Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins biðu 228 börn eftir að komast að hjá sálfræðingi og 118 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Tekist hefur að vinna nokkuð niður biðlista hjá Heilsugæslunni en í ágúst 2022 biðu 618 börn og 486 höfðu beðið í þrjá mánuði eða lengur.
- Um miðjan febrúar biðu 16 börn eftir þjónustu göngudeildar BUGL og meðalbiðtími var 1,7 mánuður. Töluverðum árangri hefur verið náð við að vinna niður biðlista hjá BUGL en í desember 2021 biðu 133 börn, meðalbiðtími var 7,7 mánuður á göngudeildum A og B, 11,1 mánuður hjá transteymi og 5,3 mánuður hjá átröskurnarteymi.
- Fleiri börn bíða í lengri tíma eftir þjónustu í Barnahúsi. Í lok desember 2024 biðu 42 börn og 19 höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Staðan hefur versnað nokkur frá því um miðjan september 2024 en þá biðu 14 börn eftir þjónustu Barnahúss
- 21 barn beið eftir sálfræðiþjónustu hjá Barna- og fjölskyldustofu vegna óviðeigandi kynhegðunar. Meðalbiðtími voru 44 dagar og 1 barn hafði beðið lengur en þrjá mánuði. Hér er um nokkra aukningu að ræða þar sem ekki hefur verið bið eftir þessari þjónustu frá því umboðsmaður barna kallaði fyrst eftir tölum um bið barna í desember 2021 en þá biðu 4 börn og meðalbiðtími var 33,4 dagar.
Það er von umboðsmanns barna að birting þessara upplýsinga muni varpa ljósi á raunverulega stöðu barna í íslensku samfélagi og verði stjórnvöldum hvatning til aðgerða og úrbóta. Söfnun og birting upplýsinganna er jafnframt liður í því hlutverki umboðsmanns að stuðla að frekari innleiðingu Barnasáttmálans.
Að mati umboðsmanns barna þurfa stjórnvöld að grípa til aðgerða með það að markmiði að koma í veg fyrir að börn þurfi að bíða eftir þjónustu sem þau þarfnast og eiga rétt á. Það er til að mynda ótækt að biðtími barna eftir heilbrigðisþjónustu samræmist ekki þeim almennu viðmiðum sem embætti landlæknis hefur sett um biðtíma en samkvæmt þeim á skoðun hjá sérfræðingi að fara fram innan 30 daga frá því að beiðni er lögð fram og meðferð að fara fram innan 90 daga frá greiningu. Þá er ljóst að ef lög nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna eiga að ná markmiðum um snemmtækan stuðning þarf að koma í veg fyrir að langir biðlistar myndist eftir þjónustu. Samkvæmt 24. gr. Barnasáttmálans eiga börn rétt á að njóta besta heilsufars sem hægt er að tryggja og ber aðildarríkjum sáttmálans að kappkosta við að tryggja að ekkert barn fari á mis við rétt sinn til að njóta slíkrar heilbrigðisþjónustu. Þá ber jafnframt að tryggja öllum börnum jöfn tækifæri til þess að ná eðlilegum þroska, sbr. 6. gr. Barnasáttmálans.
Nýjar upplýsingar og samanburður
Upplýsingar um bið barna eftir þjónustu
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Í lok janúar á þessu ári biðu alls 132 börn eftir þjónustu Heyrnar- og talmeinastöðvar. Meðalbiðtími fyrir börn undir fjögurra ára aldri var 3,5 mánuðir og 3,4 mánuðir fyrir eldri börn. Þessi börn bíða nær öll eftir heyrnarmælingu og sum einnig eftir annarri þjónustu heyrnarfræðinga eða lækna. Með átaki í lok síðasta árs tókst að vinna niður biðlista hjá Heyrnar- og talmeinastöð. Í lok janúar 2024 biðu 553 börn og 418 í byrjun júlí það sama ár.
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands er miðstöð þekkingar í heyrnar- og talmeinum á Íslandi. Þar er veitt þjónusta á landsvísu, þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með mál og talmein.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Árið 2024 höfðu 80 börn stöðu brotaþola í kynferðisbrotamáli og 150 í ofbeldisbrotamáli. Þá hafði 21 barn stöðu sakbornings í kynferðisbrotamáli og 145 í ofbeldisbrotamáli. Hér þarf að gera fyrirvara þar sem um er að ræða bráðabirgðatölur sem geta tekið breytingum aftur í tímann. Það vekur athygli að ofbeldisbrotamálum þar sem börn hafa haft stöðu sakbornings hefur fjölgað nokkuð jafnt og þétt á seinustu árum en árið 2015 höfðu 75 börn stöðu sakbornings í ofbeldisbrotamáli.
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um bið barna eftir úrræðum á vegum BOFS eru frá 1. febrúar 2025. Úrræði á vegum BOFS eru MST, Stuðlar, Bjargey, styrkt fóstur og Barnahús.
- MST - Það biðu 19 börn eftir þjónustu MST teymis og meðalbiðtími var 60 dagar. Þá höfðu 2 börn beðið lengur en þrjá mánuði.
MST er meðferðarúrræði á vegum Barna- og fjölskyldustofu fyrir fjölskyldur barna á aldrinum 12-18 ára sem glíma við alvarlegan hegðunarvanda.
- Stuðlar – Ekkert barn beið eftir þjónustu meðferðardeildar Stuðla né neyðarvistun Stuðla.
Stuðlar eru meðferðarstöð fyrir börn og unglinga frá 12 til 18 ára, Stuðlar skiptast í tvær deildir, neyðarvistun og meðferðardeild.
- Blönduhlíð – Það biðu 7 börn eftir að komast í meðferð í Blönduhlíð, meðalbiðtími var 115 dagar og 4 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði.
Blönduhlíð er meðferðarúrræði fyrir börn og unglinga sem rekið er á Vogi.
- Bjargey - Það biðu 10 börn eftir plássi á Bjargey og meðalbiðtími var 33 dagar.
Bjargey er langtímameðferðarheimili sem er ætlað stúlkum og kynsegin. Meginmarkmið meðferðarheimilisins er einkum að veita sérhæfða meðferð vegna alvarlegra hegðunarerfiðleika og vímuefnaneyslu.
- Styrkt fóstur - Það biðu 6 börn eftir því að komast í styrkt fóstur og meðalbiðtími var 47 dagar, eitt barn hafði beðið lengur en þrjá mánuði.
Styrkt fóstur er þegar þörf er fyrir sérstaka umönnun og þjálfun barns á fósturheimili í takmarkaðan tíma, að hámarki tvö ár. Gjarnan er um að ræða börn sem eiga við íþyngjandi tilfinninga- og hegðunarvanda að etja sem ekki hefur tekist að vinna bug á með öðrum og vægari hætti.
- SÓK – Það beið 21 barn eftir sálfræðiþjónustu hjá Barna- og fjölskyldustofu vegna óviðeigandi kynhegðunar. Meðalbiðtími í málum sem hófu meðferð frá 1. janúar 2024 til 1. febrúar 2025, frá samþykkt umsóknar til fyrsta viðtals var að meðaltali 44 dagar og spannaði frá 18 upp í 119 daga. Þá hafði eitt barn beðið lengur an þrjá mánuði. Hér er um nokkra aukningu að ræða þar sem ekki hefur verið bið eftir þessari þjónustu frá því umboðsmaður barna kallaði fyrst eftir tölum um bið barna í desember 2021 en þá biðu 4 börn og meðalbiðtími var 33,4 dagar.
SÓK-meðferð er sálfræðiþjónusta fyrir börn sem þurfa á aðstoð að halda vegna óviðeigandi eða skaðlegrar kynhegðunar. Barnaverndarþjónustur sveitarfélaga geta vísað áfram í úrræðið.
Barnahús
Þann 31. desember 2024 biðu 42 börn eftir meðferð í Barnahúsi. Þau brot sem börnin hafa orðið fyrir eru flokkuð eftir alvarleika í flokka 1 og 2, meðalbiðtími í flokki 1 var 81 dagur og 104 dagar í flokki 2. Þá höfðu 19 börn beðið lengur en þrjá mánuði. Staðan hefur versnað nokkur frá því um miðjan september 2024 en þá biðu 14 börn eftir þjónustu Barnahúss, þar af 12 börn í flokki 1 og 2 börn í flokki 2.
Ráðgjafar- og greiningarstöð
Þann 27. janúar sl. beið 401 barn á aldrinum 0-6 ára eftir þverfaglegri greiningu hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð, meðalbiðtími var 22,8 mánuðir og 358 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Jafnframt biðu 243 börn á aldrinum 6-18 ára eftir þverfaglegri greiningu. Meðalbiðtími í þeim aldurshópi var 24 mánuðir og 222 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði.
Þeim börnum sem bíða eftir þjónustu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar hefur fjölgað nokkuð frá því umboðsmaður kallaði fyrst eftir þessum upplýsingum í desember 2021. Þá biðu 226 börn hjá sviði yngri barna (0-6 ára), meðalbiðtími var 19 mánuðir og 100 börn hjá sviði eldri barna (6-18 ára), meðalbiðtími 13 mánuðir. Samtals biðu því 326 börn í desember 2021 en nú bíða 644 börn.
Hlutverk Ráðgjafar- og greiningarstöðvar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra.
Barna- og unglingageðdeild (BUGL)
Þann 12. febrúar sl. biðu 16 börn eftir þjónustu göngudeildar BUGL. Meðalbiðtími var 1,7 mánuður og ekkert barn hafði beðið lengur en þrjá mánuði. Þar að auki beið 1 barn eftir átröskunarmeðferð göngudeildar, engin bið var eftir meðferð þar. Mikill árangur hefur náðst við að vinna niður biðlista hjá BUGL en í desember 2021 biðu 133 börn, meðalbiðtími var 7,7 mánuður á göngudeildum A og B, 11,1 mánuður hjá transteymi og 5,3 mánuður hjá átröskurnarteymi.
Göngudeild barna- og unglingageðdeildar veitir börnum og unglingum að 18 ára aldri þjónustu vegna geð- og þroskaraskana.
Geðheilsumiðstöð barna
Þann 20. janúar sl. biðu 2093 börn hjá Geðheilsumiðstöð barna og 1808 börn höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Þar af biðu 641 barn eftir athugun vegna gruns um einhverfu og meðalbiðtími var að minnsta kosti 34 mánuðir. Þá biðu 1244 börn eftir athugun vegna gruns um ADHD með eða án einhverfu og 1070 af þeim höfðu beðið lengur en þrjá mánuði. Börnum sem bíða eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna hefur fjölgað töluvert frá því umboðsmaður barna kallaði fyrst eftir upplýsingum um bið barna eftir þjónustu í desember 2021 en þá biðu 738 börn.
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir börn að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga.
Heilsuskólinn
Í janúar sl. beið 71 barn eftir að komast að hjá Heilsuskólanum. Meðalbiðtími var 10,6 mánuðir og 49 börn höfðu beðið lengur en 3 mánuði.
Heilsuskóli Barnaspítalans þjónar öllu landinu og aðstoðar börn og fjölskyldur þeirra sem eru 2,5 staðalfrávikum fyrir ofan meðalkúrfu í BMI eða börn sem hafa verið með mikla þyngdaraukningu á stuttum tíma. Í Heilsuskólanum eru fjölskyldum kenndar aðferðir til að takast á við þyngdarstjórnun og viðhalda breytingum ásamt því að bæta lífsgæði til lengri tíma. Leitast er við að hvetja börnin áfram með styðjandi hætti ásamt því að veita ráðgjöf um mataræði og hreyfingu.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Í lok janúar sl. biðu 228 börn eftir þjónustu sálfræðings hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og meðalbiðtími var 184 dagar. Þá höfðu 118 börn beðið lengur en þrjá mánuði. Tekist hefur að vinna nokkuð niður biðlista hjá Heilsugæslunni en í ágúst 2022 biðu 618 börn og 486 höfðu beðið í þrjá mánuði eða lengur.
Sálfræðingar á heilsugæslustöðvum veita börnum meðferð vegna hegðunar- og tilfinningavanda ásamt því að veita foreldrum þeirra ráðgjöf. Læknir á heilsugæslustöð þarf að senda tilvísun til sálfræðings til nánara mats ásamt því að upplýsa um áætlaðan biðtíma.
Talmeinafræðingar
Sjúkratryggingar Íslands gerðu úttekt á stöðu barna sem biðu eftir þjónustu talmeinafræðinga í desember 2021 en þá voru 3.701 barn skráð á biðlista, þar af voru 947 börn skráð á fleiri en einum stað. Flest börn á biðlistum höfðu beðið í 0 – 6 mánuði (eða um 30%) en um 11% höfðu beðið lengur en 2 ár. Engar haldbærar upplýsingar liggja fyrir um hvernig þróunin hefur verið frá árinu 2021 þar sem biðlistar og kerfi eru ekki samræmd. Að mati umboðsmanns barna ber stjórnvöldum að grípa til aðgerða með það að markmiði að koma í veg fyrir að börn þurfi að bíða eftir þjónustu talmeinafræðinga. Þar til því markmiði verður náð ber stjórnvöldum að sjá til þess að hægt sé að nálgast upplýsingar með reglubundnum hætti um það hversu mörg börn séu á biðlistum eftir þessari þjónustu. Slík upplýsingaöflun er grundvallarforsenda þess að hægt sé að leggja mat á stöðuna hverju sinni og grípa til viðeigandi aðgerða