Fréttir: september 2013

Fyrirsagnalisti

30. september 2013 : Jákvæð þróun vímuefnaneyslu unglinga

Nýverið birti Rannsóknir og greining við Háskólann í Reykjavík tvær skýrslur um stöðu og þróun vímuefnaneyslu ungmenna á Íslandi. Í stuttu máli er þróun vímuefnaneyslu meðal ungmenna á Íslandi afar jákvæð og sýna báða skýrslurnar þróun undanfarinna 13 – 15 ára.

27. september 2013 : Tillaga til þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi, 37. mál.

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um tillögu til þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi, 37. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með tölvupósti dags. 27. september 20113.

26. september 2013 : Haustdagskrá RannUng

Rannsóknarstofa í menntunarfræðum ungra barna (RannUng) hefur gefið út haustdagskrá 2013. Markmið RannUng er að auka og efla rannsóknir á menntun og uppeldi ungra barna.

17. september 2013 : Unglingar og vímuefni - Morgunverðarfundur

Miðvikudaginn 25. september kl 08:15-10:00 stendur Náum áttum hópurinn fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík um unglinga og vímuefni.

10. september 2013 : Hvernig tryggjum við rétt allra barna óháð uppruna? - Morgunverðarfundur um lögfestingu Barnasáttmálans

Í tilefni af lögfestingu Barnasáttmálans verður efnt til tveggja morgunverðarfunda þar sem fjallað verður um hvernig hægt sé að tryggja rétt allra barna á Íslandi óháð uppruna.

9. september 2013 : „Ekki mögulegt“ að koma á fót úrræði fyrir börn með alvarlegan vímuefna- og afbrotavanda

Í svarbréfi velferðarráðuneytisins við fyrirspurn umboðsmanns barna segir að með hliðsjón af aðstæðum í ríkisfjármálum er ekki mögulegt að koma á fót stofnun sem sameini bráðavistun og meðferð vegna alvarlegrar vímefnaneyslu og afbrotahegðunar. Umboðsmaður telur því íslenska ríkið brjóta skyldur sínar samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að þessu leyti.

6. september 2013 : Fyrirlestrar.is - Nýr vefur

Í dag var opnaður vefurinn fyrirlestrar. Markmið hans er að auka víðsýni, draga úr fordómum og veita ókeypis fræðslu um samfélagsmál með forvarnir að leiðarljósi. Á vefnum er hægt að horfa á fjölmörg myndbönd um málefni sem tengjast börnum, uppeldi og mannlífinu almennt.

5. september 2013 : Tengslafundur fyrir félagssamtök sem starfa að hagsmunamálum barna

Öllum samtökum sem vinna að hagsmunamálum barna er boðið að senda fulltrúa á tengslafund fimmtudaginn 12. sept. nk. kl. 14:30-17:00. Fundurinn verður haldinn á 5. hæð í Kringlunni 1, 103 Reykjavík (gamla Morgunblaðhúsið).

2. september 2013 : Snemmtæk íhlutun - Námstefna

Hinn 8. október n.k. klukkan 9 - 16 verður haldin námsstefna um snemmtæka íhlutun fyrir fjölskyldur í Norræna húsinu. Efnið á erindi við fagfólk á vettvangi, rannsakendur, stjórnendur og stefnumótandi aðila innan velferðarþjónustunnar á sviði barna og fjölskyldumála.

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica